Mat á fyrra námi Til að sækja um mat á fyrra námi skal fylla út rafræna umsókn í gegnum Uglu. Sjá nánar um mat á fyrra námi hér Nánari upplýsingar um lög og reglur á Menntavísindasviði. Fjarnám Þau sem hyggjast sækja um fjarnám þurfa eins og aðrir nemendur að fylla út rafræna umsókn. Námskeið sem eru kennd í fjarnámi er merkt með hnetti í kennsluskrá. Fjarnemar þurfa að gera ráð fyrir að mæta í staðlotur sem eru tvisvar á hverju misseri, viku í senn. Nánar um fjarnám. Námsmat og próf Námskeiðum við Menntavísindasvið lýkur að jafnaði á tilsettum degi í lok hvers misseris með prófi eða verkefni. Til að nemandi fái að leysa lokaverkefni eða þreyta próf verður hann að vera skráður í námskeiðið og hafa uppfyllt skilyrði um viðvist eða ástundun ef um það er að ræða. Til að standast hvert einstakt námskeið þarf lágmarkseinkunnina 5. Prófatímabil má sjá í kennslualmanaki. Sjúkra- og endurtektarpróf eru haldin í fjóra til sex daga í kjölfar almennra próftímabila í janúar og maí samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra. Sjá nánar reglur um fyrirkomulag prófa og endurtöku prófa. Mat og einkunnir Námsmat getur byggst á skriflegum, munnlegum eða verklegum prófum, ritgerðum og verkefnum. Í námskeiðum þar sem námsmat er bæði byggt á prófum og verkefnum þarf lágmarkseinkunnina 5 í hvoru tveggja. Í námskeiðum sem skipulögð eru í sjálfstæðum þáttum er heimilt að fara fram á að stúdentar standist lágmarkskröfur í hverjum þætti fyrir sig. Einkunnir eru gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10. Í einstökum tilvikum lýkur námskeiði með vitnisburðinum um að námskeiði sé lokið án þess að einkunn sé gefin í tölum. Verkefni Verkefni til námsmats geta verið með margvíslegu móti, bæði munnleg og skrifleg. Vægi verkefna og skiladaga skal tilgreina í kennsluáætlun. Ber að líta á skiladag verkefnis á sama hátt og um prófdag væri að ræða. Kennara er ekki skylt að taka við verkefni sem berst eftir tilsettan skiladag. Kennari getur gefið stúdent frest í nokkra daga ef gildar ástæður eru fyrir hendi, þó aldrei lengur en svo að hann geti skilað einkunn stúdents fyrir námskeiðið í Uglu fyrir tilskilinn skiladag. Sé verkefni ekki skilað á réttum tíma skal litið á það á sama hátt og fall á prófi. Óheimilt er að nýta sér efni annarra í verkefnum, texta, myndir eða annað, beint eða óbeint, og leggja fram sem sitt eigið efni, án þess að geta sérstaklega um heimildir og vísa til þeirra. Viðurlög geta varðað endurtöku verkefnis, brottvísun úr námskeiði eða jafnvel úr skóla. Sjá nánar í kennsluskrá. Próf Öll próf skulu haldin á fyrirframauglýstum stað og tíma, þar með talin heimapróf. Próftöflu skal birta á vefnum a.m.k. átta vikum fyrir próf. Prófstjórar Menntavísindasviðs stjórna prófi en prófverðir sjá um framkvæmd í hverri stofu og framfylgja reglum og fyrirmælum um prófið. Próftími skal vera 2–4 klukkustundir og er lengd ákveðin af umsjónarmanni námskeiðs meðal annars með tilliti til stærðar námskeiðs, efnisumfangs og hlutfalls prófs af heildarnámsmati. Stúdentum er óheimilt að bera á sér farsíma meðan á prófi stendur. Ekki er heimilt að yfirgefa prófstofu um stundarsakir nema með leyfi og undir eftirliti prófvarðar. Kennari námskeiðs skal vera til taks meðan á prófi stendur. Komi upp óvissa um tiltekin atriði í prófi skal kennari veita öllum stúdentum sömu skýringu. Skil á einkunnum Umsjónarmenn námskeiða skila niðurstöðum námsmats inn í Uglu eigi síðar en tveimur vikum eftir að próf er haldið eða verkefnum skilað. Prófsýning og prófdómur Stúdentar eiga rétt á að skoða prófúrlausnir sínar og fá skýringar á mati hjá viðkomandi umsjónarmanni námskeiðs ef þeir æskja þess innan 15 daga frá því að einkunn hefur verið birt. Sama gildir ef verkefni eða verkleg frammistaða eru grundvöllur að lokamati í námskeiði. Uni stúdent ekki skýringum á mati getur hann farið fram á endurmat enda sendi hann rökstudda greinargerð innan tveggja vikna til námsbrautarstjóra eða deildarforseta, sem metur málið í samráði við viðkomandi umsjónarmann. Ef stúdent unir ekki þeim úrskurði getur hann innan tveggja vikna krafist þess að kallaður sé til utanaðkomandi prófdómari og gildir þá úrskurður hans. Fjarpróf Allir stað- og fjarnemar geta sótt um að þreyta próf sín utan höfuðborgarsvæðisins og einnig vegna dvalar erlendis. Sjá nánar í kennsluskrá. Ritgerðir og lokaverkefni Grunn- og framhaldsnámi við Menntavísindasvið lýkur með fræðilegu lokaverkefni. Að jafnaði er gert ráð fyrir að á síðasta námsári í grunn- og framhaldsnámi vinni nemandi lokaverkefni. Verkefnin eru unnin undir handleiðslu fastráðinna kennara við sviðið. Nemendur á MT leiðum í framhaldsnámi skrifa ekki lokaverkefni en taka kennslufræðitengd námskeið í staðinn. Ítarlegar upplýsingar um frágang og skil lokaverkefni eru í Uglu. Bakkalárverkefni Meistaraverkefni Brautskráning Háskóli Íslands brautskráir kandídata þrisvar á ári, í febrúar, júní og október. Formlegar brautskráningarathafnir eru hins vegar aðeins tvær, í febrúar og júní. Þau sem ljúka námi á sumarmisseri brautskrást í október og geta sótt útskriftarskírteini sín á kennsluskrifstofu Menntavísindasviðs í lok október. Jafnframt geta þau óskað eftir að taka þátt í brautskráningarathöfn í febrúar. Staðfesta þarf áætlaða brautskráningu með a.m.k. fimm vikna fyrirvara, sjá rafrænt eyðublað í Uglu. Sjá nánar Mikilvægar dagsetningar Deild faggreinakennslu Deild heilsueflingar, íþrótta- og tómstunda Deild kennslu- og menntunarfræði Deild menntunar og margbreytileika Tengt efni Einingamat og einkunnir Próf Sértæk þjónusta facebooklinkedintwitter