Skip to main content

Úrræði í prófum og Aðgengissetur

Aðgengissetur

Aðgengissetur Nemendaráðgjafar Háskóla Íslands er til húsa í Gimli, stofu 101 á 1. hæð. Tölvuverið hefur 10 vinnustöðvar.

Aðgengissetur er próftökuherbergi og vinnuaðstaða fyrir nemendur sem þurfa á sérhæfðum búnaði að halda í námi og prófum. Þar er að finna hugbúnað fyrir nemendur með sjónskerðingu, stillanlega skrifborðsstóla og hækkanleg borð.

Aðgengissetur er upptekið vegna prófa: 

6. febrúar kl. 08:30 - 12:00.
9. febrúar kl. 13:00 - 17:40. 
10. febrúar kl. 08:00 - 13:00. 
10. febrúar kl. 16:30 - 18:30. 
13. febrúar kl. 11:20 - 14:30. 
16. febrúar kl. 15:30 - 17:30. 
23. febrúar kl. 15:30 - 17:30. 
4. mars kl. 15:30 - 17:30. 
9. mars kl. 15:30 - 17:30. 
16. mars kl. 15:30 - 17:30.
23. mars kl. 15:30 - 17:30. 
30. mars kl. 15:30 - 17:30. 
13. apríl kl. 15:30 - 17:30. 

Úrræði í prófum

Til að fá úrræði í prófum/námi verður nemandi að framvísa gögnum (greiningu/vottorði) frá viðeigandi sérfræðingi og sækja um úrræði hér. Lokafrestur til að sækja um úrræði er 1. október á haustmisseri og 1. mars á vormisseri.

Athugið að prófúrræði taka ekki gildi fyrr en ráðgjafi og nemandi hafa samþykkt samning í Uglu sem tekur að minnsta kosti þrjá daga að ganga í gegn.

Ef aðstæður á prófstað eru ekki í samræmi við samninginn þinn hvetjum við þig til að tilkynna það strax til prófvarðar meðan á próftöku stendur. Eftir að próftöku lýkur getur verið erfitt að bregðast við ábendingum. 

Hér er að finna nánari upplýsingar um greiningar, vottorð og úrræði í boði.       

Athugið að próf í Canvas eru alltaf á vegum kennara. Nemandi ber ábyrgð á að upplýsa kennara um lengdan próftíma.                                                

Hvernig veit ég hvort próf er á vegum kennara eða Prófaskrifstofu?

Hér er að finna hlutapróf og lokapróf á vegum Prófaskrifstofu HÍ. Ef próf birtist í þessum próftöflum ábyrgjast prófstjórn HÍ og NHÍ úrræði.

Athugið að próf í Canvas eru alltaf á vegum kennara. Nemandi ber ábyrgð á að upplýsa kennara um lengdan próftíma með að minnsta kosti viku fyrirvara.                               

Lengdur próftími