Aðalbygging Háskóla Íslands
- Hjólastólarampur er við aðalinngang
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða fyrir framan innganginn og við suðurgafl byggingarinnar
- Lyfta
- Aðgengilegt salerni á 1. og 2. hæð
Bíó Paradís
- Aðgengilegt salerni
-
Rampur inn í sal 1
-
Lyfta inn í sal 2 og 3
-
Hjólastólastæði eru í öllum sölum
-
Bíó Paradís býður upp á tónmöskva í sal 1
Borgarbókasafnið í Spönginni
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða fyrir framan inngang safnsins
- Rampur af bílastæði upp á hellulagða gangstétt
- Rennihurð er á safninu sem opnast sjálfkrafa.
- Engir þröskuldar í húsinu
- Aðgengilegt salerni á jarðhæð
- Salerni eru ókyngreind
- Leiðsöguhundar velkomnir
Gerðuberg
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða fyrir framan innganginn
- Tvöfaldar rennihurðir við báða innganga
- Engir þröskuldar eru í byggingunni
- Lyfta
- Aðgengilegt salerni
- Salerni eru ókyngreind
- Ágæt hljóðvist
- Leiðsöguhundar velkomnir
Harpa
- Aðgengi fyrir hjólastóla er gott í Hörpu
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða
- Þrjár lyftur fara beint úr bílakjallara upp á allar hæðir
- Aðgengileg salerni á öllum hæðum
Mannréttindahúsið
- Upphækkuð bílastæði fyrir hreyfihamlaða við gangstétt upp við bygginguna
- Engir þröskuldar
- Leiðarlínur og áherslusvæði fyrir blint og sjónskert fólk
- Navilens rötunarkerfi
- Lyfta fyrir allar hæðir
- Aðgengileg salerni á fyrstu hæð
Norræna húsið
- Ágætt aðgengi í flest rými hússins
- Að húsinu liggur hjólastólarampur og inni í húsinu er lyfta sem fer niður í sýningarrýmið Hvelfingu
- Fyrir hjólastóla er aðgengilegt inná barnabókasafnið frá Hvelfingu
- Elissa (salur) hefur gott aðgengi.
- Aðgengileg salerni eru á aðalhæð hússins
- Ókyngreind salerni
- Skynvænt rými er í boði á meðan að á viðburðinum stendur
Sjóminjasafnið
- Bílastæði fyrir hreyfihamlaða
- Lyfta
- Aðgengileg salerni
- Hjálparhundar velkomnir
Þjóðleikhúskjallarinn
- Tvö sérmerkt bílastæði eru aðgengileg frá Hverfisgötu
- Rampur er að lyftu sem er alltaf opin fyrir sýningar í Kjallara
- Aðgengileg salerni