Skip to main content

Stutt starfsþjálfun og rannsóknarvinna

Nemendur eiga kost á að sækja um styrki fyrir stuttri starfsþjálfunardvöl (5-30 dagar) í gegnum Erasmus+ áætlunina. Einnig er hægt að nýta þessar dvalir til rannsóknarvinnu.  
Erasmus+ styttri námsdvalir á grunn- og meistarastigi þurfa að vera blandaðar dvalir, þar sem hluti starfsþjálfunar fer fram á staðnum og hluti hennar á rafrænu formi. Doktorsnemar geta farið í stutta námsdvöl án þess að taka hluta rafrænt. 

Umsóknarfrestir fyrir Erasmus+ styrki fyrir starfsþjálfun eru 15. maí fyrir dvalir sem hefjast á haustmisseri og 15. nóvember fyrir dvalir sem hefjast um vor og sumar. 

Hægt er að sækja um eftir umsóknarfrest en í slíkum tilfellum er nauðsynlegt að senda tölvupóst á traineeships@hi.is og láta vita þegar umsókn hefur verið send inn. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki í forgangi fyrir styrk.

Allar upplýsingar um Erasmus+ starfsþjálfunarstyrki 

SÆKJA UM STYRK