Rannís stendur fyrir Vísindavöku á Íslandi, en hún er haldin samtímis í helstu borgum Evrópu síðasta föstudag í september ár hvert, undir nafninu Researchers' night.
Markmiðið með Vísindavökunni er að færa vísindin nær almenningi og kynna manneskjurnar á bak við vísindin. Einnig til að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna- og vísindastarfs í nútímasamfélagi. Það er gert með lifandi kynningum og boðið upp á skemmtilega og fræðandi viðburði fyrir alla fjölskylduna.
Allar vísindagreinar eru kynntar á Vísindavöku, hugvísindi jafnt sem raunvísindi.
Vísindavaka Rannsís er styrkt af Marie Sklodowska-Cure sem er undiráætlun Horizon 2020 áætlun Evrópusambandsins.

Tengt efni