Rannsóknaháskóli verður til er ný hlaðvarpsröð, byggð á viðtölum við rúmlega 60 akademíska starfsmenn Háskóla Íslands sem voru við störf á síðasta þriðjungi 20. aldar. Í 30 hlaðvörpum má heyra frásagnir af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands þar sem m.a. er fjallað um starfsaðstæður, kennsluhætti og rannsóknir. Tilgangurinn er að varpa ljósi á það hvernig Háskólinn efldist sem rannsóknaháskóli á síðustu áratugum 20. aldar og fram yfir aldamótin 2000. Í viðtölunum er þessi merkilega uppbyggingarsaga sögð frá sjónarhóli vísindamannanna sjálfra og fæst þannig ómetanleg, persónuleg sýn á þróun vísindastarfs í Háskólanum. Viðtölunum er m.a. ætlað að glæða áhuga og skilning almennings á starfi Háskólans og framlagi hans til vísinda á Íslandi. Aðstandendur verkefnisins eru Guðmundur Jónsson, fyrrverandi prófessor í sagnfræði, og Leifur Reynisson, sagnfræðingur og verkefnisstjóri hjá Miðstöð munnlegrar sögu í Landsbókasafni – Háskólabókasafni. Verkefnið er unnið í samvinnu við Miðstöð munnlegrar sögu og með stuðningi Háskóla Íslands. Viðmælendur voru valdir í samráði við fræðasvið Háskólans og var leitast við að þeir kæmu úr öllum þeim fræðigreinum sem kenndar voru í Háskólanum eftir 1970 og fram um aldamót. Nálgast má hlaðvörpin hér að neðan. Félagsvísindi 1. þáttur – Félagsfræði Viðmælendur: Þorbjörn Broddason (f. 1943), prófessor í félags- og fjölmiðlafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1970–2013) Þórólfur Þórlindsson (f. 1944), prófessor í félagsfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1978–2014) 2. þáttur – Lögfræði Viðmælendur: Jónatan Þórmundsson (f. 1937), prófessor í lögfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1967–2007) Stefán M. Stefánsson (f. 1938), prófessor í lögfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1975–2008) 3. þáttur - Mannfræði Viðmælendur: Gísli Pálsson (f. 1949), prófessor í mannfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1982–2019) Haraldur Ólafsson (f. 1930), prófessor í mannfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1973–2000) Sigríður Dúna Kristmundsdóttir (f. 1952), prófessor í mannfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1980–2022) 4. þáttur – Stjórnmálafræði Viðmælendur: Ólafur Ragnar Grímsson (f. 1943), prófessor í stjórnmálafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1970 – 1993) Ólafur Þ. Harðarson (f. 1951), prófessor í stjórnmálafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1980–2021) 5. þáttur – Bókasafns- og upplýsingafræði Viðmælandi: Sigrún Klara Hannesdóttir (f. 1943), prófessor í bókasafns- og upplýsingafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1972–1998) 6. þáttur – Viðskipta- og hagfræði Viðmælendur: Brynjólfur Ingvar Sigurðsson (f. 1940), prófessor í viðskiptafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1975 – 2010) Þorvaldur Gylfason (f. 1951), prófessor í hagfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1983–2021) Heilbrigðisvísindi 7. þáttur – Hjúkrunarfræði Viðmælendur: Herdís Sveinsdóttir (f. 1956), prófessor í hjúkrunarfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1987–2026) Marga Ingeborg Thome (f. 1942), prófessor í hjúkrunarfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1977–2012) 8. þáttur – Líffræði Viðmælendur: Gísli Már Gíslason (f. 1950), prófessor í vatnalíffræði (starfaði við Háskóla Íslands 1977–2020) Guðmundur Eggertsson (f. 1933), prófessor í líffræði (starfaði við Háskóla Íslands 1969–2003) 9. þáttur – Lyfjafræði Viðmælendur: Kristín Ingólfsdóttir (f. 1954), prófessor í lyfjafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1988–2015) Þorsteinn Loftsson (f. 1950), prófessor í lyfjafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1979–2020) 10. þáttur – Læknisfræði Viðmælendur: Bjarni Þjóðleifsson (f. 1939, d. 2025), prófessor í læknisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1976–2009) Helga Margrét Ögmundsdóttir (f. 1948), prófessor í læknis- og ónæmisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1986–2018) Jórunn Eyfjörð (f. 1946), prófessor í læknisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1977-2016) 11. þáttur – Sjúkraþjálfun Viðmælendur: Ella Kolbrún Kristinsdóttir (f. 1940), dósent í sjúkraþjálfun (starfaði við Háskóla Íslands 1976–2010) María Ragnarsdóttir (f. 1943), lektor í sjúkraþjálfun (starfaði við Háskóla Íslands 1977–2008) María Þorsteinsdóttir (f. 1943), dósent í sjúkraþjálfun (starfaði við Háskóla Íslands 1978–2014) 12. þáttur – Sálfræði Viðmælendur: Sigurður J. Grétarsson (f. 1955), prófessor í sálfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1985–2024) Sigurjón Björnsson (f. 1926), prófessor í sálfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1971–1994) 13. þáttur – Tannlæknisfræði Viðmælendur: Guðjón Axelsson (f. 1935), prófessor í tannlæknisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1973–1999) Sigfús Þór Elíasson (f. 1944), prófessor í tannlæknisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1979–2014) Hugvísindi 14. þáttur – Guðfræði Viðmælandi: Kristján Búason (f. 1932), dósent í guðfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1975–2003) 15. þáttur – Heimspeki Viðmælendur: Mikael Marlies Karlsson (f. 1943), prófessor í heimspeki (starfaði við Háskóla Íslands 1983 – 2013) Vilhjálmur Árnason (f. 1953), prófessor í heimspeki (starfaði við Háskóla Íslands 1983–2023) 16. þáttur – Íslenskar bókmenntir Viðmælandi: Vésteinn Ólason (f. 1938), prófessor í íslenskum bókmenntun (starfaði við Háskóla Íslands 1972–2009) 17. þáttur – Íslensk málfræði Viðmælendur: Höskuldur Þráinsson (f. 1946), prófessor í íslenskri málfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1979–2016) Jón G. Friðjónsson (f. 1944), prófessor í íslenskri málfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1982–2014) Kristján Árnason (f. 1946), prófessor í íslenskri málfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1974–2016) 18. þáttur – Sagnfræði Viðmælendur: Anna Agnarsdóttir (f. 1947), prófessor í sagnfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1980–2017) Helgi Þorláksson (f. 1945), prófessor í sagnfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1979–2015) 19. þáttur – Sagnfræði Viðmælendur: Guðmundur Hálfdánarson (f. 1956), prófessor í sagnfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1991–2026) Guðmundur Jónsson (f. 1955), prófessor í sagnfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1993–2025) Menntavísindi 20. þáttur – Uppeldis- og menntunarfræði Viðmælendur: Guðný Guðbjörnsdóttir (f. 1949), dósent í uppeldis- og menntunarfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1975–2019) Jón Torfi Jónasson (f. 1947), prófessor í uppeldis- og menntunarfræði (starfað við Háskóla Íslands frá 1977-2017) Verkfræði, náttúruvísindi og raunvísindi 21. þáttur – Eðlisfræði Viðmælendur: Einar H. Guðmundsson (f. 1947), prófessor í eðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1982–2017) Þorsteinn Vilhjálmsson (f. 1940, d. 2025), prófessor í eðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1971 – 2010) 22. þáttur – Eðlisfræði Viðmælendur: Rögnvaldur Ólafsson (1943, d. 2024), prófessor í eðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1977–2014) Sveinbjörn Björnsson (f. 1936), prófessor í jarðeðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1965–1997) 23. þáttur – Efnafræði Viðmælendur: Hörður Filippusson (f. 1944), dósent í lífefnafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1971–2023) Sigmundur Guðbjarnason (f. 1931), prófessor í efnafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1970–2001) 24. þáttur – Jarðfræði Viðmælendur: Bryndís Brandsdóttir (f. 1953), vísindamaður í jarðeðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1976–2023) Páll Einarsson (f. 1947), prófessor í jarðeðlisfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1975–20179 25. þáttur – Jarðfræði Viðmælendur: Helgi Björnsson (f. 1942), prófessor í jöklafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1971–2012) Sigurður Steinþórsson (f. 1940), prófessor í berg- og jarðefnafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1970–2010) Stefán Arnórsson (f. 1942), prófessor í jarðefnafræði (starfaði við Háskóla Íslands 1978–2012) 26. þáttur – Stærðfræði Viðmælendur: Eggert Briem (f. 1941), prófessor í stærðfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1972–2011) Sven Þórarinn Sigurðsson (f. 1945), prófessor í reiknifræði (starfaði við Háskóla Íslands 1972–2012) 27. þáttur – Tölvunarfræði Viðmælandi: Jóhann Malmquist (f. 1949), prófessor í tölvunarfræði og nýsköpun (starfaði við Háskóla Íslands 1980–2024) 28. þáttur – Verkfræði Viðmælendur: Júlíus Sólnes (f. 1937), prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1972–2007) Ragnar Guðmundur Ingimarsson (f. 1934), prófessor í byggingarverkfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1964–2004) 29. þáttur – Verkfræði Viðmælendur: Anna Soffía Hauksdóttir (f. 1958), prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði (Hefur starfaði við Háskóla Íslands frá 1988) Þorgeir Pálsson (f. 1941), prófessor í vélaverkfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1976–1996) 30. þáttur – Verkfræði Viðmælendur: Jónas Elíasson (f. 1938, d. 2023), prófessor í umhverfis- og byggingarverkfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1973–2008) Sigfús Björnsson (f. 1938, d. 2023), prófessor í rafmagnsverkfræði (starfaði við Háskóla Íslands 1977–2008) facebooklinkedintwitter