Leiðarljós um farsæl samskipti í háskólasamfélagins Samskiptasáttmáli Háskóla Íslands er leiðarljós um góð samskipti innan háskólans og aðferð við að stuðla að jákvæðum, uppbyggilegum og faglegum samskiptum á milli nemenda, starfsfólks í stjórnsýslu, kennara, rannsakenda, gesta og verktaka háskólasamfélagsins. Formáli Samskiptasáttmálar eru eitt af þeim verkfærum sem vinnustaðir nota til að skapa jákvæða, heilbrigða og inngildandi vinnustaðamenningu. Samskiptasáttmáli Háskóla Íslands er því leiðarljós um góð samskipti innan háskólans og aðferð við að stuðla að jákvæðum, uppbyggilegum og faglegum samskiptum á milli nemenda, starfsfólks í stjórnsýslu, kennara, rannsakenda, gesta og verktaka háskólasamfélagsins. Samskiptasáttmálinn er afrakstur 15 vinnufunda starfsfólks og nemenda skólans. Þau sem ekki höfðu færi á að mæta á vinnufundina gátu komið sínum sjónarmiðum á framfæri í gegnum netkönnun. Drög að samskiptasáttmála voru kynnt fyrir starfsfólki og nemendum og báðir hópar fengu kost á að gefa endurgjöf. Samskiptasáttmálinn samanstendur af sjö flokkum sem innihalda eitt til tvö hugtök sem oftast komu fyrir við gagnaöflun fyrir sáttmálann. Þessir sjö flokkar mynda sameiginlegt leiðarljós háskólasamfélagsins um góð samskipti. Slæm samskipti geta valdið streitu og álagi en á heilbrigðum vinnustað einkennast samskipti af trausti, virðingu og samvinnu. Góð samskipti — hvort sem er augliti til auglitis eða á netmiðlum og á öllum vettvangi, svo sem í kennslustofu, á kaffistofu, á fundum, í klínísku starfi eða utan vinnu og skóla — eru forsenda þess að geta starfað saman á uppbyggilegan hátt. Í Háskóla Íslands er skýrt að einelti, ofbeldi, hótanir og hvers kyns áreitni — kynbundin, kynferðisleg eða af öðrum toga — eru með öllu óheimil og verða aldrei liðin. Háskólinn hefur sett sér bæði verklagsreglur um viðbrögð við einelti og verklagsreglur um viðbrögð við áreitni. Með sáttmálanum fylgir listi yfir þau úrræði sem starfsfólk og nemendur geta gripið til ef sáttmálinn er brotinn, sem og leiðir til að tilkynna um einelti, ofbeldi og kynbundna eða kynferðislega áreitni og ofbeldi. 1. Ábyrgð Við berum ábyrgð á eigin hegðun, samskiptum, verkefnum og viðbrögðum hvort sem er í formlegu, óformlegu eða hversdagslegu vinnutengdu umhverfi. Ábyrgðin á líka við um samskipti í tölvupósti, á fjarfundum og á samfélagsmiðlum. Dæmi: Í daglegum samskiptum: Við berum ábyrgð á eigin hegðun, viðurkennum og játum ef okkur hefur orðið á. Við biðjumst afsökunar og leiðréttum mistök og tökum vel á móti afsökunarbeiðnum annarra. Við lítum í eigin barm þegar eitthvað bjátar á í stað þess að vísa allri ábyrgð á aðra. Við erum opin fyrir uppbyggilegri gagnrýni og veitum aðeins gagnrýni sem er uppbyggileg. Við vöndum vinnubrögð okkar eftir fremsta megni. 2. Virðing Við berum virðingu fyrir störfum hvors annars og tíma. Auk þess berum við virðingu fyrir ólíkum kynjum, kynvitund, kynhneigð, bakgrunni, menningu, fötlun og kynslóðum. Virðing getur verið mikilvæg fyrir sálrænt öryggi, inngildingu og jafnrétti. Dæmi: Í daglegum samskiptum: Við sýnum hvort öðru og störfum hvors annars virðingu og virðum framlag og ólík sjónarmið samstarfsfólks og nemenda. Við virðum frítíma hvort annars og gerum ekki ráð fyrir því að nemendur, samstarfsfólk og kennarar svari skilaboðum utan hefðbundins vinnutíma. Á fundum: Við virðum boðaða fundartíma og fundardagskrá. Við erum til staðar á fundum t.d. með því að leggja til hliðar önnur verkefni. Í kennslu: Kennarar og nemendur sýna hvorir öðrum virðingu í umræðum, kennslu og rafrænum samskiptum. Í rannsóknum: Rannsakendur virða framlag samstarfsaðila, vísindaleg vinnubrögð og ólík fræðileg sjónarmið. 3. Traust og heiðarleiki Við byggjum upp traust með því að standa við orð okkar og vinna af heiðarleika og sanngirni. Þannig getum við tjáð okkur af öryggi og án ótta við óvægna gagnrýni eða fordóma. Við viðurkennum mistök og forðumst leynd, tvíræðni og ógagnsæi. Dæmi: Í daglegum samskiptum: Við sköpum vinnustaðamenningu og námsumhverfi þar sem málefnaleg umræða og uppbyggileg rökræða fá að njóta sín. Í kennslu: Kennarar sýna gagnsæi í námsmati og leiðrétta mistök þegar þau koma upp. Kennarar og nemendur gæta trúnaðar um upplýsingar sem veittar eru í kennslustund um raunveruleg tilfelli. Í rannsóknum: Rannsakendur vinna af fagmennsku, viðurkenna framlag annarra, deila gögnum á ábyrgan hátt og forðast rangfærslur. Í stjórnsýslu: Starfsfólk gefur heiðarlegar upplýsingar, vinnur á gagnsæjan hátt og stendur við tímamörk. Nemendur í klínísku og verknámi námi: Nemendur gæta fyllsta trúnaðar og miðla ekki viðkvæmum upplýsingum, hvorki opinberlega né á samfélagsmiðlum. Í rafrænum samskiptum: Leynilegar upptökur af kennslu, fundum eða samnemendum eru ekki heimilar. Ekki er heldur heimilt að miðla efni nema með leyfi viðkomandi aðila. Ekki er viðeigandi að skrifa nafnlaust um háskólann eða starfsfólk þess á samfélagsmiðlum. 4. Kurteisi og tillitssemi Við sýnum tillitssemi, vinsamlega framkomu og viðeigandi hegðun í samskiptum. Kurteisi birtist í orðum, athöfnum og stafrænum samskiptum. Smávægilegt athæfi getur haft áhrif á starfsanda og líðan fólks. Dæmi: Í daglegum samskiptum: Við leggjum okkur fram um að bjóða góðan daginn í upphafi dags og kveðja í lok dags. Við göngum frá eftir okkur á kaffistofum og öðrum sameiginlegum rýmum. Allt starfsfólk HÍ: Við vöndum orðaval, sýnum tillitssemi og forðumst baktal í daglegum samskiptum. Við veitum góða og skilningsríka þjónustu. Í kennslu: Kennarar hlusta á ólík sjónarmið og taka þátt í málefnalegri umræðu. Nemendur sýna kurteisi í samskiptum við samnemendur og kennara og stunda málefnalega umræðu. Í rannsóknum: Rannsakendur beita uppbyggilegri gagnrýni og fagmennsku í störfum sínum. Í rafrænum samskiptum: Við vöndum orðaval, notum kurteisan tón og forðumst að nota hástafi í heilum setningum, sem og gífuryrði hvort sem er í tölvupósti eða á netmiðlum. Við erum í mynd á fjarfundum þegar við á. 5. Skilningur og umhyggja Við hlustum, reynum að skilja sjónarhorn annarra og sýnum samkennd. Við gerum okkur grein fyrir að kynslóðabil og menningarheimar geta haft áhrif á hvernig við túlkum samskipti. Við reynum að bregðast við af nærgætni og leitumst við að setja okkur í spor annarra. Dæmi: Í daglegu starfi: Starfsfólk og nemendur bjóða fram aðstoð ef þörf er á og sýna skilning þegar erfiðar aðstæður koma upp t.d. vegna andláts nákomins ættingja. Í kennslu: Nemendur sýna skilning á að fylgja þurfi reglum HÍ og námsleiða. Í rannsóknum: Rannsakendur fylgja í hvívetna viðmiðum um vandaða starfshætti og siðferði í vísindum og rannsóknum. Í stjórnsýslu: Starfsfólk sýnir fjölbreyttum hópi nemenda og starfsfólks hugulsemi. 6. Jákvæðni og gleði Við reynum að temja okkur jákvætt hugarfar og vöndum okkur við að hrósa, sýna þakklæti og gleðjast saman þegar við á. Jákvæðni og gleði stuðla að heilbrigðum samskiptum og góðum starfsanda. Dæmi: Í daglegu starfi: Við hrósum hvort öðru þegar við á og leggjum okkar af mörkum til að skapa góðan starfsanda. Við fögnum litlum sem stórum sigrum. Í kennslu: Kennarar skapa jákvætt námsumhverfi þar sem mistök eru hluti af lærdómi. Nemendur hvetja og hrósa hvert öðru þegar við á. Í rannsóknum: Rannsakendur nálgast ágreining með lausnamiðaðri afstöðu og hvetja til uppbyggilegra umræðna. Í stjórnsýslu: Starfsfólk stuðlar að jákvæðni í samskiptum með léttri þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun. 7. Samvinna og hjálpsemi Við vinnum saman að sameiginlegum markmiðum háskólans, styðjum hvert annað og sýnum þolinmæði. Með samvinnu getum við náð meiri árangri en hvert í sínu lagi. Samvinna er mikilvægur þáttur í góðu starfsumhverfi þar sem traust og virðing ríkja. Dæmi: Í daglegu starfi: Við bjóðum fram aðstoð, deilum þekkingu og hvetjum hvort annað. Í kennslu: Kennarar hvetja til samvinnu og nemendur styðja hverjir aðra þegar við á. Í rannsóknum: Rannsakendur deila reynslu sinni og styðja nýja fræðimenn. Í stjórnsýslu: Starfsfólk vinnur saman að lausnum og deilir upplýsingum af heilindum. Viðbrögð Samskiptaörðugleikar eru af misjöfnum toga og misalvarlegir, auk þess sem upplifun einstaklinga og viðbrögð við atvikum geta verið ólík. Hér fyrir neðan er listi yfir viðbrögð sem starfsfólk og nemendur geta gripið til ef þau upplifa óæskileg samskipti og þau úrræði sem háskólinn hefur sett sér þegar starfsfólk upplifir einelti, ofbeldi, kynbundið áreiti/ofbeldi eða kynferðislegt áreiti/ofbeldi. Úrræði fyrir starfsfólk 1. Vísa í samskiptasáttmála Starfsfólk er hvatt til þess að vísa í sáttmálann þegar það upplifir neikvæða hegðun eins og fjallað er um í sáttmálanum. Dæmi: Ef starfsmaður er að skoða símann sinn á fundum er hægt að vísa í sáttmálann og biðja viðkomandi góðfúslega um að leggja frá sér símann á meðan á fundinum stendur. Dæmi: Ef starfsfólk upplifir sífellt neikvætt tal (tuð) hjá samstarfsfólki sínu er hægt að vísa í sáttmálann og biðja viðkomandi um að beina kvörtunum sínum í réttan farveg. Dæmi: Ef starfsfólk eða nemendur hringja eða senda skilaboð á samfélagsmiðlum á kvöldin eða um helgar er hægt að vísa í sáttmálann eða fjölskyldustefnu háskólans og biðja viðkomandi góðfúslega um að virða frítíma fólks. 2. Velferðartorg HÍ Á velferðartorgi HÍ má finna sérfræðinga sem hægt er að leita til þegar upp koma samskiptaörðugleikar eða árekstrar við samstarfsfélaga eða stjórnendur. Það getur verið gott að ræða um líðan sína og fá bæði stuðning og gagnleg ráð um hvernig best er að bregðast við með skynsamlegum hætti til að leysa úr samskiptaörðugleikunum. 3. Samtal við stjórnanda Starfsfólk getur leitað til síns næsta stjórnanda þegar það upplifir að sáttmálinn hafi verið brotinn. 4. Samtal við mannauðsstjóra eða mannauðsráðgjafa fræðasviðs eða miðlægrar stjórnsýslu Starfsfólk er hvatt til þess að hafa samband við mannauðsstjóra / mannauðsráðgjafa til þess að fá leiðbeiningar um þá möguleika sem eru fyrir hendi þegar starfsfólk upplifir að sáttmálinn hafi verið brotinn. 5. Tilkynning um einelti eða annað ofbeldi Á forsíðu Uglu er að finna allar upplýsingar um hvernig hægt er að tilkynna um einelti eða annað ofbeldi. 6. Tilkynning um kynbundið eða kynferðislegt áreiti/ofbeldi Á forsíðu Uglu er að finna allar upplýsingar um hvernig hægt er að tilkynna um kynbundið eða kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. 7. Siðareglur HÍ Siðareglur HÍ er að finna á heimasíðu háskólans. Siðareglurnar eru m.a. viðmið um breytni allra háskólaborgara, nemenda og starfsfólks, innan sem utan skólans, hvort sem þeir sinna akademískum störfum, öðrum störfum eða námi við háskólann. Í grein 7.1. eru leiðbeiningar um hvernig vísa má málum til siðanefndar HÍ. 8. Siðareglur háskólanna um vísindarannsóknir Siðareglur háskólanna um vísindarannsóknir er einnig að finna á heimasíðu háskólans. Þeim er ætlað að vera rammi um rannsóknarstarf kennara, nemenda og fræðimanna opinberra háskóla á Íslandi og þar með standa vörð um heilindi í rannsóknum. Úrræði fyrir nemendur 1. Vísa í samskiptasáttmála Nemendur eru hvattir til þess að vísa í sáttmálann þegar þeir upplifa neikvæða eða meiðandi hegðun eins og fjallað er um í sáttmálanum. 2. Nemendaráðgjöf Nemendur geta leitað eftir aðstoð hjá sálfræðingum og ráðgjöfum hjá nemendaráðgjöf Háskóla Íslands. 3. Samtal við deildarforseta Nemendur er hvattir til að leita til deildarforseta síns fræðasviðs þegar þeir upplifa að sáttmálinn hafi verið brotinn. 4. Tilkynning um einelti eða annað ofbeldi Á forsíðu Uglu er að finna allar upplýsingar um hvernig hægt er að tilkynna um einelti eða annað ofbeldi. 5. Tilkynning um kynbundið eða kynferðislegt áreiti/ofbeldi Á forsíðu Uglu er að finna allar upplýsingar um hvernig hægt er að tilkynna um kynbundið eða kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. 6. Samtal við umboðsmann Hlutverk umboðsmanns doktorsnema er að vera hlutlaus aðili sem veitir doktorsnemum ráðgjöf og aðstoð varðandi t.d. mögulegar lausnir á vandamálum sem steðja að og stuðla að bættum samskiptum á milli doktorsnema og leiðbeinanda eða doktorsnefndar og leiðbeinanda. 7. Siðareglur Siðareglur HÍ er að finna á heimasíðu háskólans. Siðareglurnar eru m.a. viðmið um breytni allra háskólaborgara, nemenda og starfsfólks, innan sem utan skólans, hvort sem þeir sinna akademískum störfum, öðrum störfum eða námi við háskólann. Í grein 7.1. eru leiðbeiningar um hvernig vísa má málum til siðanefndar HÍ. 8. Siðareglur HÍ um vísindarannsóknir Siðareglur háskólanna um vísindarannsóknir er einnig að finna á heimasíðu háskólans. Þeim er ætlað að vera rammi um rannsóknarstarf kennara, nemenda og fræðimanna opinberra háskóla á Íslandi og þar með standa vörð um heilindi í rannsóknum. Aðrar leiðir til þess að nota sáttmálann Í ráðningarviðtölum Í ráðningarsamningum Við móttöku nýs starfsfólks Í starfsmannasamtölum Í samtölum stjórnenda við starfsfólk vegna samskiptaörðugleika Í nemendakönnunum Í samningum við verktaka facebooklinkedintwitter