Hlutverk Launateymis er að allir starfsmenn Háskólans fái laun sín greidd á réttum tíma og þau séu í samræmi við gildandi kjara- og stofnanasamninga. Staðsetning: Launateymi er staðsett á Háskólatorgi fyrir aftan þjónustuborð skólans Opið: kl. 10 - 15 alla virka daga Sími: 525-4390 Netfang: laun@hi.is Nauðsynlegt er að öll launagögn berist til Launateymis í síðasta lagi 15. hvers mánaðar til að tryggja að launavinnslu sé lokið á réttum tíma. Útborgun er einu sinni í mánuði, fyrsta dag hvers mánaðar. Spurt og svarað Persónuafsláttur Til að nýta persónuafslátt hjá HÍ þarf að fylgja þessum leiðbeiningum: Þjónustumiðja – Persónuafsláttur. Samgöngusamningur Starfsfólk sem hefur undirritað ráðningasamning við HÍ og er í a.m.k. 20% starfshlutfalli gefst kostur á að gera samgöngusamning við skólann. Upplýsingar um samgöngusamning. Vinnustund Vinnustund er tímastimplunarkerfið sem Háskóli Íslands notast við. Allir starfsmenn, fyrir utan akademíska, eiga að vera í Vinnustund. Um leið og starfsmaður er ráðinn í starf innan Háskólans fær hann aðgang að Vinnustund. Hér eru leiðbeiningar um hvernig skal skrá sig inn í Vinnustund í fyrsta skipti og hvernig sjálfsþjónustan virkar. Ef ekki finnst lausn við vandamálinu þar er hægt að senda póst á laun@hi.is. Hægt er að tengjast Vinnustund í gegnum Uglu á þægilegan hátt. Inn- og útstimplun er innbyggt í Ugluna. Hér eru upplýsingar um Vinnustund í Uglunni. Innheimtumaður ríkissjóðs - frádráttur Þegar starfsmenn ríkisins eru í skuld við tollstjóra, dregst upphæðin sjálfkrafa af launum viðkomandi. Undir frádráttarliðum á launaseðli má sjá upphæðina. Launateymið hefur ekki upplýsingar um hvernig skuldin er tilkomin en nánari upplýsingar um þennan frádráttarlið er hægt að sjá inn á innri vef Ísland.is eða hjá tollstjóra. Staðfesting á starfstímabili Til að fá staðfestingu á starfstímabili skal senda póst á verkefnisstjóra fræðasviðs þíns. Ef staðfestingin er fyrir Vinnumálastofnun, þá sendir Launateymið rafræna staðfestingu beint til Vinnumálastofnunar. Orlof Starfsmenn vinna sér ávallt inn orlof með störfum sínum við Háskóla Íslands. Þegar um fulla vinnu er að ræða er yfirleitt búist við því að starfsmenn taki orlofið sitt út sem frí á orlofstímabili en þegar um minni og tímabundna samninga er að ræða er orlofið stundum greitt út meðfram mánaðarlaunum. Þetta er þó samningsatriði sem kemur fram á ráðningarsamningnum. Orlof er greitt út í maí af vörsluaðilanum Arion banka Nánari upplýsingar um orlofstöku starfsfólks er að finna hér. Verktakagreiðslur Launateymið sér ekki um verktakagreiðslur. Ekki er unnt að vera launþegi ásamt því að fá verktakagreiðslur frá Háskólanum. Gjaldkeri sér um afgreiðslu reikninga og má hafa samband við hann í gegnum netfangið birnabjo@hi.is. Starfsmannahandbók Hér er hlekkur á starfsmannahandbókina en þar er að finna ógrynni af upplýsingum. Launataxtar Hér má sjá algengustu launatöflur innan Háskólans. Hægt er að nálgast flestar launatöflur inn á vefjum stéttafélaga. Launatafla FH stjórnsýsla og aðrir 1.4.2024 Launatafla FH akademískir 1.4.2024 Launatafla Sameykis 1.4.2024 Launatafla stundakennara 1.1.2025 Starfsmenn deildar Anna ÓlafsdóttirTeymisstjóri5255170annaol [hjá] hi.is Ásta SigmarsdóttirVerkefnisstjóri5254196astas [hjá] hi.is Bjarni BjarnasonVerkefnisstjóri5254577bbjarnason [hjá] hi.is Jóhann Björn SigurgeirssonVerkefnisstjóri5254849johannbjorn [hjá] hi.is Saskia Freyja SchalkVerkefnisstjóri5254297saskia [hjá] hi.is Tengt efni Fjármálasvið Reikningshald Fjársýslan - launatöflur Information in english: Human resources facebooklinkedintwitter