
Rannsóknamat og innri sjóðir
Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða sér um mat á rannsóknum og innri rannsóknatengda sjóði við Háskóla Íslands. Önnur verkefni eru ráðgjöf, tölulegar greiningar á rannsóknum, röðunarlistar, talnaefni á vef og upplýsingakerfi rannsókna (IRIS).
Ársmat
Akademískir starfsmenn Háskóla Íslands eiga að skila inn skrá yfir ritverk, kennslu og stjórnun í samræmi við matsreglur. Eyðublöð og nánari upplýsingar eru á Uglu. Skiladagur framtala er 1. febrúar. Fyrirspurnir um ársmat skal senda á framtal@hi.is.
Grunnmat
Nýir akademískir starfsmenn sem og aðjúnktar og nýdoktorar eiga að skila inn skrá yfir ritverk, kennslu og stjórnun í samræmi við matsreglur. Framtal og fyrirspurnir skal senda á framtal@hi.is.
Matskerfi sem stuðst er við í ársmati og grunnmati
MATSKERFI (Samþykkt af stjórn Matskerfis opinberu háskólanna 11.12.2024). Fyrir grunnmat 2025 og verk sem birt verða á árinu 2025 og síðar.
Leiðbeiningar við matskerfi 2025 og síðar
Eldri matskerfi:
- MATSKERFI (Samþykkt af stjórn Matskerfis opinberu háskólanna 20.12.2022). Fyrir verk sem birt voru árið 2024.
- MATSKERFI (Samþykkt af stjórn Matskerfis opinberu háskólanna 17.12.2021).
- MATSKERFI (Samþykkt af Matskerfisnefnd 23.12.2019).
- MATSKERFI (Samþykkt af Matskerfisnefnd 19.12.2018).
- MATSKERFI (Samþykkt af Matskerfisnefnd 14.11.2013).
- Matskerfi verka ársins 2009 og fyrr.

Akademískt hæfi heilbrigðisstarfsfólks
Akademískar nafnbætur starfsfólks á heilbrigðisstofnunum með samstarfssamning við Háskóla Íslands. Sjá upplýsingasíðu um veitingu akademískra nafnbóta og reglur um akademískt hæfi heilbrigðisstarfsfólks.
Akademísk gestastörf við Háskóla Íslands
Forsetum fræðasviða er heimilt, í umboði rektors, að bjóða völdum einstaklingum að gegna akademískum gestastörfum. Vísindanefnd háskólaráðs annast faglegt mat og tekur afstöðu til umsókna. Sjá verklagsreglur áður en umsóknareyðublaðið er fyllt út. Ósk um endurnýjun samnings skal senda til formanns vísindanefndar ekki síðar en 6 mánuðum áður en samningurinn rennur út. Senda skal póst á formann vísindanefndar háskólaráðs ásamt rannsoknasjodur@hi.is og óska eftir endurnýjun (tilgreinið nafn gestakennarans og látið fylgja núgildandi samning). Yfirlit yfir gestakennara við HÍ 2026.

Akademískt hæfi: Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða starfar með dómnefndnum í nýráðningum, framgang og mat á akademísku hæfi (klíniskra nafnbóta og gestakennara nafnbóta).
Nýráðningar: Akademísk störf eru m.a. auglýst á Starfatorgi og sótt er um á umsóknareyðublaði þar. Nánari upplýsingar veitir Baldvin Zarioh, bmz@hi.is.
Framgangur:
Flýtiframgangur: Framgangur í kjölfar nýráðningar. Sjá verklagsreglur. Umsóknarfrestur er 1. nóvember ár hvert.
Nánari upplýsingar um framgang.
Ótímabundin ráðning: Sjá upplýsingar í Uglu. Nánari upplýsingar veitir Mannauðssvið, mannaudur@hi.is.
Hafðu samband
Framtal starfa og grunnmat: framtal@hi.is
IRIS/PURE og Birtingarsjóður: pure@hi.is.
Rannsóknasjóður og styrkir: rannsoknasjodir@hi.is
Nýráðingar og akademískar nafnbætur: bmz@hi.is
Deildarstjóri er Baldvin M Zarioh, nýráðningar, akademískar nafnbætur, Birtingarsjóður, IRIS og OA.
Verkefnisstjórar:
Elvar Daði Eiríksson, grunnmat, framtal starfa og Samfélagssjóður.
Eyrún Lóa Eiríksdóttir, IRIS, nýráðningar og framgangur.
Maya Staub, innri sjóðir og gestastörf.
Reynir Örn Jóhannsson, framtal starfa og ritari Siðanefndar Háskólanna um Vísindarannsóknir.
Sverrir Guðmundsson, framgangur og HÍ í tölum.
