
Hvað er að vera mentor í Spretti?
Mentorar eru háskólanemar sem vilja láta gott af sér leiða. Markmið hlutverksins er að vera menningarbrúarsmiður og leiðbeinandi í lærdómsferli annarra nemenda í verkefninu Spretti. Mentorar sinna því mikilvæga hlutverki að styðja og hvetja nemendur í námi og félagslífi. Hlutverk þeirra er að skapa uppbyggjandi mentorasambönd við aðra, taka þátt í skemmtilegri virkni, heimavinnuhópum og sameiginlegum viðburðum með öllum hópnum. Mentorhlutverkið snýst um tengslamyndun og í þátttöku felst því skuldbinding gagnvart þátttakendum Spretts.
Við hvetjum háskólanema á öllum námsbrautum og af öllum kynjum, sem geta skuldbundið sig til að taka þátt yfir eitt til tvö misseri, til þess að taka þátt!
Hverju taka mentorar þátt í?
-
Lærdómsríkum málstofum í námskeiðinu Mentor í Spretti GKY001M.
-
Hálfsmánaðarlegri samveru með þátttakendum Spretts.
-
Hálfsmánaðarlegum heimavinnuhópum.
-
Sameiginlegum menningar- og háskólaviðburðum.
Hvað fá mentorar?
-
5 eininga námskeið um mentorhlutverkið þar sem meðal annars er fjallað um málefni innflytjenda, leiðtogafærni, fjölmenningarfærni, hnattræna borgaravitund, og fleira.
-
Skírteinisviðauka/Diploma supplement.
-
Persónulegan stuðning og tækifæri til að blómstra og prófa fjölbreyttar aðferðir til að styðja aðra.
Hvernig verð ég mentor í Spretti?
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í Spretti, fylltu út þetta eyðublað og verkefnisstjóri Spretts mun hafa samband við þig.
Hafðu samband
Juan Camilo Roman Estrada
Fjölmenningarfulltrúi og verkefnisstjóri Spretts
Tölvupóstur: juancamilo@hi.is
Sími: 525-5405
