
Tungumálamiðstöð
Tungumálamiðstöð HÍ skipuleggur margskonar tungumálanámskeið til að mæta þörfum nemenda og starfsmanna HÍ.
Rík áhersla er lögð á nemendastýrt nám þar sem nemandinn stjórnar öllum helstu þáttum námsins með aðstoð kennara. Hann setur sér markmið, velur mismunandi aðferðir í náminu og vinnur með efni sem tengist áhugasviði eða sérgrein hans. Þannig er tungumálanámið sniðið að þörfum hvers nemanda.

Viltu læra tungumál?
Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands er opin öllum nemendum og starfsfólki Háskólans sem vilja leggja stund á tungumálanám.
Í Tungumálamiðstöðinni er aðstaða fyrir nemendur til tungumálanáms.
Forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar er Eyjólfur Már Sigurðsson. Auk hans starfa nemendur í tímavinnu.

Tungumálanámskeið
Tungumálamiðstöðin skipuleggur tungumálanámskeið fyrir nemendur og starfsfólk. Nemendum stendur til boða nám í sjö tungumálum: dönsku, frönsku, hindí, ítölsku, pólsku, spænsku og þýsku. Námskeið þessi eru metin til eininga. Sjá námskeið á Uglu.
Á hverju misseri er boðið upp á tungumálanámskeið fyrir starfsfólk. Sjá námskeið hér.
Auk þess er boðið upp á fjarnám í íslensku sem erlendu máli með eða án aðstoðar kennara, á vefnum Icelandic Online.
