Líf í vatni Vernda og nýta hafið og auðlindir þess á sjálfbæran hátt 14.1 Eigi síðar en árið 2025 verði verulega dregið úr og komið í veg fyrir hvers kyns mengun sjávar, einkum frá starfsemi á landi, þ.m.t. rusli í sjó og mengun af völdum næringarefna. 14.2 Eigi síðar en árið 2020 verði gengið vel um vistkerfi sjávar og stranda og þau vernduð á sjálfbæran hátt til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif, þar á meðal með því að grípa til aðgerða til að endurheimta og hlúa að vistkerfunum og njóta ábatans. 14.3 Unnið gegn súrnun sjávar og skaðlegum áhrifum haldið í skefjum, t.d. með því að efla vísindasamstarf á því sviði. 14.4 Eigi síðar en árið 2020 verði komið á skilvirku eftirliti með afla og tekið fyrir ofveiði og ólöglegar, óskráðar og stjórnlausar fiskveiðar og skaðlegar veiðiaðferðir. Hrundið verði í framkvæmd áætlunum um stjórn fiskveiða, sem byggjast á vísindalegum grunni, í því skyni að endurheimta fiskstofna á sem skemmstum tíma, a.m.k. að því marki að hámarka sjálfbærni stofna með tilliti til líffræðilegra eiginleika. 14.5 Eigi síðar en árið 2020 verði búið að vernda a.m.k. 10% af strandlengjum og hafsvæðum heimsins í samræmi við landslög og alþjóðalög, að teknu tilliti til bestu tiltæku, vísindalegu upplýsinga. 14.6 Eigi síðar en árið 2020 verði tilteknar niðurgreiðslur í sjávarútvegi, sem stuðla að ofveiði, bannaðar sem og niðurgreiðslur sem stuðla að ólöglegum, óskráðum og stjórnlausum fiskveiðum. Jafnframt verði reynt að koma í veg fyrir að niðurgreiðslur verði teknar upp í nýju formi og horfst í augu við að mismunandi aðferðir eiga við og eru skilvirkari fyrir þróunarlöndin og ættu í raun að vera órjúfanlegur þáttur í samningaviðræðum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um niðurgreiðslur í sjávarútvegi þróunarríkjunum til handa og þá þeim sem skemmst eru á veg komin. 14.7 Eigi síðar en árið 2030 hafi þau þróunarlönd sem eru smáeyríki og þau sem skemmst eru á veg komin hlotið efnahagslegan ávinning af sjálfbærri nýtingu sjávarauðlinda, meðal annars með því að ástunda sjálfbæra stjórn fiskveiða, sjálfbært fiskeldi í sjó og sjálfbæra ferðaþjónustu. Vísindamenn tengdir markmiðinu Ásta Dís ÓladóttirPrófessor5255466astadis [hjá] hi.is Brynhildur DavíðsdóttirPrófessor5255233bdavids [hjá] hi.is Daði Már KristóferssonPrófessor5254553dmk [hjá] hi.is Edda Elísabet MagnúsdóttirLektor5255328eddaem [hjá] hi.is Gísli Már GíslasonPrófessor emeritus8615422gmg [hjá] hi.is Gísli PálssonPrófessor emeritusgpals [hjá] hi.is Guðbjörg Ásta ÓlafsdóttirForstöðumaður8989037gaol [hjá] hi.is Guðrún MarteinsdóttirPrófessorrunam [hjá] hi.is Gunnar StefánssonPrófessor5255915gunnar [hjá] hi.is Halldór Pálmar HalldórssonForstöðumaður5255162halldor [hjá] hi.is Jón ÓlafssonPrófessor5254423jonolafs [hjá] hi.is Kristín Vala RagnarsdóttirPrófessor emerita5255886vala [hjá] hi.is Marianne Helene RasmussenForstöðumaður5255885mhr [hjá] hi.is Sigurður Sveinn SnorrasonPrófessor emeritus5254612sigsnor [hjá] hi.is Snæbjörn PálssonPrófessor5254293snaebj [hjá] hi.is Steven CampanaPrófessorscampana [hjá] hi.is Þórólfur Geir MatthíassonPrófessor emeritus5254530totimatt [hjá] hi.is Þróunarlönd 14.A Vísindaleg þekking verði aukin og vísindarannsóknir þróaðar ásamt tækniþekkingu í haffræðum, að teknu tilliti til viðmiðunarreglna Alþjóðahaffræðinefndarinnar um hvernig nýta má þekkingu í sjávarútvegi til framþróunar í þróunarlöndunum, einkum þeim sem eru smáeyríki og þeim sem eru skemmst á veg komin, í því skyni að vernda hafið og líffræðilega fjölbreytni þess. 14.B Veita þeim sem veiða í smáum stíl aðgang að sjávarauðlindum og mörkuðum. 14.C Vernda og efla sjálfbæra nýtingu hafsins og auðlinda þess með því að framfylgja alþjóðalögum, sbr. ákvæði þar að lútandi í hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna þar sem kveðið er á um varðveislu og sjálfbæra nýtingu hafsins og auðlinda þess og nefnt er í 158. gr. í skýrslunni „The future we want“. Tengt efni Háskólinn og heimsmarkmiðin facebooklinkedintwitter