Saga
Upplýsingar um sviðið Tengt efni
Tölvuþjónusta
Skipulag

Upplýsingatæknisvið samanstendur af þremur deildum

Markmið hugbúnaðardeildar er að þróa og viðhalda hugbúnaðarlausnum sem styðja vel við starfsemi opinberu háskólanna og til að ná þeim markmiðum sem stefna HÍ skilgreinir hverju sinni. Aðalhlutverk hugbúnaðardeildar er að þróa og viðhalda Uglu sem er megin upplýsingakerfi háskóla. Hugbúnaðardeild samanstendur af fjórum hópum:

Náms og kennsluhópur

Hlutverk hópsins er að annast þróun og viðhald á kerfum í Uglu sem tengjast námi og kennslu. Helstu kerfi eru þar:

  • Stúdentsýsl
  • Kennsluskrá
  • Umsóknarkerfi
  • Forsalur umsókna
  • Prófahald
  • Námsvottorð
  • Kennslukannanir

Mannauðshópur

Hópurinn þróar og viðheldur mannauðslausnum Uglu, sem eru Kvika og Kolur. Hópurinn sér einnig um notendaumsjónarkerfi og verkbókhald.

Vefhópur

Vefhópur annast þróun og viðhald vefja HÍ. Það nær til aðalvefja HÍ; íslenska og enska, stofnanavefja og sérvefja í Drupal og Wordpress.

Grunnkerfishópur

Markmið hópsins er að þróa ýmis grunnkerfi Uglu, t.d. aðgangs- og öryggisstýringarkerfi, gagnagrunnslag og vefþjónustulag. Einnig sér hópurinn um þróun á Vöruhúsi gagna.

Hlutverk Rekstrardeildar UTS er að aðstoða starfsmenn og nemendur með mál tengd upplýsingatækniþjónustum sem notaðar eru í starfi og námi við Háskóla Íslands. Rekstrardeildin sér um rekstur á miðlægri þjónustu.

Megin markmið rekstrardeildar er að veita starfsmönnum og nemendum Háskóla Íslands ásamt tengdum samstarfsaðilum framúrskarandi þjónustu ásamt því að veita þeim ráðgjöf og aðstoð þegar kemur að málum tengdum upplýsingartækni.

Rekstardeild samanstendur af þremur hópum:

Kerfisstjórahópur

Hlutverk hópsins er að sinna stjórnun upplýsingakerfa sem eru í rekstri hjá HÍ og utan hjá hýsingaraðilum.

Nethópur

Hlutverk hópsins er að sinna netmálum, þ.e. rekstri og viðhaldi HÍ neta og ytri tenginga.

Notendaþjónustuhópur

Hlutverk hópsins er að veita almenna tölvuþjónustu með fjar- og staðarþjónustu.

Notendaþjónustuhópur er framlína UTS og sinnir tæknivandamálum sem koma upp hjá starfsfólki og nemendum.

Hópurinn skiptist í þrjár einingar:

  • Vettvangsþjónustu sem sinnir starfsfólki stjórnsýslu og fræðasviða eftir þjónustusamningum.
  • Tölvuþjónustu sem sinnir staðbundinni tölvuþjónustu á þjónustuborði UTS á Háskólatorgi, þar sem tekið er á móti nemendum og starfsfólki sem þurfa tækniaðstoð.
  • Kennslustofuhóp sem sinnir tölvubúnaði í kennslustofum, tölvuverum og fundarrýmum.

Hópurinn vinnur í náinni samvinnu við aðra hópa UTS og við tengiliði innan háskólasamfélagsins til að veita hraða og góða þjónustu.

Verkefnastofa er þjónustu- og ráðgjafardeild innan UTS og styður starf annara deilda með því að styrkja öguð vinnubrögð í vali, innleiðingu og rekstri upplýsingatæknilausna við Háskóla Íslands.

Hlutverk Verkefnastofu er:

  • Að skrásetja og bæta ferli og aðferðir við smíði og rekstur upplýsingatæknilausna og taka virkan þátt í gæðastýringu.
  • Að veita ráðgjöf í verkefnastýringu.
  • Að finna og kynna tæki og tól til skilvirkari smíði og reksturs upplýsingatæknilausna.
  • Eftirfylgni með verk- og tímaskráningum
  • Að veita ráðgjöf við þarfagreiningu, innleiðingu og umbætur upplýsingatæknilausna innan sviðs og utan.
  • Að stuðla að betri yfirsýn yfir stöðu verka og verkefna á hverjum tíma og miðla upplýsingum um stöðu verka og verkefna til þjónustuþega.
Gjaldskrá

Hér má sjá gjaldskrá Upplýsingatæknisviðs:

VerðEining
Notandanafn fastagjald3.150kr./mán.
Tengigjald við HÍ-net: (IP-tala eða DHCP netsamband)*500kr./mán.
ADSL tenging500kr./mán.
Ljósleiðaratenging1.660kr./mán.**
Símanúmer*1.000kr./mán.
Símanotkun3,32kr./skref

*Innifalið innan bókhaldskerfi HÍ (Viðfangsnúmers).

**Hluti gjalds fer til GR

VerðEining
Netlén innan hi.is500kr./mán.
Netlén utan hi.is1.000kr./mán.
Vefhýsing1.500kr./mán.
Gagnagrunnvistun2.000kr./mán.

VerðEining
Sýndarvél lítil → 2CPU & 8GM minni3.000kr./mán.
Sýndarvél mið → 4CPU & 16GB minni6.000kr./mán.
Sýndarvél stór → 8CPU & 32GB minni12.000kr./mán.

Ef þörf er á stærri vél þarf að semja um það sérstaklega. Fyrir diskapláss er greitt 10kr á GB á mánuði. Ef diskur í sýndarvél er 100GB er greitt 1000kr á mánuði. Greitt er fyrir heildarstærð á disk, en ekki notkun á disk.

Tölvuver eru aðeins leigð út í heild.

Fjöldi tölva Verð Eining
Askja 166 25 3.750 kr./klst.
Askja 264 (kortastofa) 12 1.800 kr./klst.
Gimli 136a 39 5.850 kr./klst.
Háskólatorg 302, Aðgengissetur 11 1.650 kr./klst.
Oddi 102 19 2.850 kr./klst.
Oddi 301 39 5.850 kr./klst.
Veröld VHV-231, Tungumálamiðstöð 17 2.550 kr./klst.
VR-II, 260 8 1.200 kr./klst.

Verð Eining
Skjáauglýsingar 35.000 kr./vika

Tengigjald vegna ráðstefnuhalds. Gjaldið er per ráðstefnu.

Verð Eining
10 - 99 gestir 15.000 kr.
100 - 249 gestir 25.000 kr.
250 - 499 gestir 50.000 kr.
500 - 999 gestir 100.000 kr.
Fleiri en 1000 gestir Hafið samband
Skammtíma notandanafn 100 kr. pr. dag

Verð Eining
Almenn tímavinna 8.000 kr./klst.
Þjónustusamningur Hafið samband

  • Nemendur hafa aðgang að grunnþjónustu (utan við ljósleiðaratengingu og síma) og er hún greidd af skráningargjöldum.
  • Nemendur greiða fyrir prentun.
  • Nemendur hafa ekki aðgang að öðrum þjónustum hér að ofan.

Í sérstökum tilvikum er notaður annar taxti en gefinn er upp hér að ofan. Um Taxta 2 gildir:

  • Taxti 2 er fyrir aðila utan bókhaldskerfis Háskólans
  • Taxti 2 er ekki alltaf sá sami og Taxti 1
  • Taxti 2 ber alltaf VSK
Starfsfólk

Sviðsstjóri

Herferð 2024-2025
""
Hafðu samband
Skrifstofur Upplýsingatæknisviðs
Saga, 7. hæð
Mán-Fim: 8:30 - 16:00, Fös: 8:30 - 15:00
Hafa samband
Ljósmynd af byggingunni Sögu við Hagatorg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil