Skip to main content

NORPALL

The Nordic Palaeo Alliance

NORPALL er samstarfshópur ungra vísindamanna í jarðvísindum sem hefur það að markmiði að bæta aldursgreiningar á landmótun jökla, setlögum og loftslagsvísum á Norðurlöndunum.

Norðurlöndin eiga það sameiginlegt að bera ríka sögu ísaldar, en hvert svæði býr þó yfir sínum eiginleikum og einstökum myndunum. Skilningur á hraða og eðli jökulhörfunar í fortíðinni er mikilvægur til að spá fyrir um framtíðarbreytingar. Rannsóknir sem veita megindleg gögn um raunaldur jarðlagaverða sífellt mikilvægari í ljósi núverandi loftslagsbreytinga  (af mannavöldum) og beinna áhrifa þeirra á freðhvolf og hnattrænt sjávarborð. NORPALL stuðlar að þróun nýrra aðferða í aldursgreiningum til að endurskapa fortíðina og skorða framtíðarspár.