Skip to main content

Bílastæði

Bílastæði - á vefsíðu Háskóla Íslands

Háskóli Íslands hefur tekið fyrsta skrefið til að bæta umferð og umhverfi á háskólasvæðinu með því að innleiða gjaldtöku fyrir bílastæði.

Bílastæðum verður skipt í tvo flokka:

  • H1: Skammtímastæði. Þau verða merkt sérstaklega og eru næst helstu byggingum. Stæðin eru gjaldskyld fyrir alla samkvæmt gjaldskrá.
  • H2: Langtímastæði. Starfsfólk og nemendur Háskóla Íslands geta gerst áskrifendur og nýtt þessi stæði sem langtímastæði með mánaðaráskrift. Aðrir greiða tímagjald samkvæmt gjaldskrá.
    • Hver einstaklingur getur skráð fleiri en eitt bílnúmer í áskrift. Ný númer eru skráð í Parka-appinu og í áskriftarhlutanum velur þú hvaða bíll á að vera virkur hverju sinni.
    • Bílastæði eru gjaldfrjáls fyrstu 15 mínúturnar, en að þeim tíma liðnum greiðist fullt gjald.
  • Handhöfum stæðiskorts fyrir hreyfihamlaða verður heimilt að leggja ökutæki í gjaldskyld stæði án sérstakrar greiðslu skv. gildandi umferðalögum. Til að skrá ökutæki sitt þarf að senda tölvupóst á bilastaedi (hjá) hi.is og láta fylgja með skýra ljósmynd af P-kortinu. 
  • Háskóli Íslands hefur gert samning við Strætó um sérkjör á tímabilskortum fyrir starfsfólk. Nánari upplýsingar um samgöngusamning (krefst innskráningar í Uglu)

Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag gjaldskyldu og áskrift eru á hi.parka.is og á Þjónustumiðju HÍ.

Kort sem sýnir gjaldskyld bílastæði við Háskóla Íslands. Rauðmerktu stæðin eru skammtímastæði (H1). Gulmerktu stæðin eru langtímastæði (H2)
Tengt efni