Skip to main content

Gátlisti

Gátlisti - á vefsíðu Háskóla Íslands

Leiðbeiningar fyrir doktorsumsókn við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild

Gátlisti fyrir umsókn án rannsóknaráætlunar (B-leið)

1. Markmið/tilgangur verkefnis er skýr og afmarkaður (undir liðnum Verkefnið í hnotskurn í umsóknareyðublaði)

2. Stutt lýsing á gildi og nýnæmi verkefnis fyrir þekkingu í hjúkrunarfræði / ljósmóðurfræði / heilbrigðisvísindum og hvernig verkefnið leggur til þekkingargrunns heilbrigðisvísinda alþjóðlega (undir liðnum Verkefnið í hnotskurn í umsóknareyðublaði)

3. Skýr áætlun um vinnslu og frágang rannsóknaráætlunar fyrir doktorsnámið (senda inn sem fylgiskjal)

4. Áætlun um fjármögnun náms kemur fram – gerð er grein fyrir áætlun um hvernig nám verður fjármagnað þ.m.t.
a. kostnaðarliðir rannsókna
b. uppihald nemanda

Gátlisti fyrir umsókn með rannsóknaráætlun (A-leið) og fyrir nemendur í B-leið áður en þeir skila rannsóknaráætlun

5. Aðkoma og innlegg hvers nefndarmeðlims er skýrt fram sett varðandi

a. Hverja rannsóknir verkefnis

b. Hvert handrit verkefnis

6. Leitast hefur verið við að fá einn nefndarmeðlim frá virtri fræðistofnun í öðru landi / öðrum virtum skóla

7. Rannsóknarspurningar/tilgátur sem verkefninu er ætlað að svara eru skýrar og afmarkaðar

8. Markmið/tilgangur verkefnis er skýr og afmarkaður

9. Skýr lýsing á gildi og nýnæmi verkefnis fyrir þekkingu í hjúkrunarfræði / ljósmóðurfræði / heilbrigðisvísindum og hvernig verkefnið leggur til þekkingargrunns heilbrigðisvísinda alþjóðlega

10. Megin hugtök rannsóknar eru skilgreind

11. Ef nota á stöðluð mælitæki til gagnasöfnunar liggja fyrir staðfest leyfi fyrir notkun þess, auk þess sem upplýsingar eru um áreiðanleika og réttmæti þess fylgja í umsókn

12. Vilyrði fyrir aðgengi að gögnum sem þegar eru til, liggur fyrir

13. Áætlun um greiningu gagna og rök fyrir henni eru útfærð í umsókn

14. Greint er frá leyfum sem sækja þarf um til að framkvæma rannsóknina

15. Fram kemur í umsóknargögnum hvernig umsækjandi hyggst efla alþjóðlegt tengslanet sitt á fræðasviðinu

16. Skýr framkvæmda- og tímaáætlun er sett fram með efnisþáttum og vörðum

17. Áætlun um fjármögnun náms kemur fram – gerð er grein fyrir áætlun um hvernig nám verður fjármagnað þ.m.t.

c. kostnaðarliðir rannsókna

d. uppihald nemanda

Tengt efni