Nemendur eiga kost á að sækja um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar eða rannsóknarvinnu hjá háskóla, fyrirtæki eða stofnun sem starfar á sviði sem tengist námi þeirra.
Upphæð styrkja fer eftir áfangastað og lengd en þær geta verið breytilegar eftir skólaárum.
- Ferðastyrkur er 309-1188 evrur
- Styrkur fyrir styttri dvalir (5-30 dagar) er 79 evrur á dag fyrstu 14 dagana, síðan 56 evrur á dag
- Styrkur fyrir lengri dvalir (2-12 mánuðir) er 700-756 evrur á mánuði
- Nemendur geta einnig sótt um Erasmus+ inngildingarstyrki. Ef nemendur mæta viðmiðum Landskrifstofu Erasmus+ vegna færri tækifæra geta þeir t.d. sótt um viðbótarstyrk sem nemur 250 evrum á mánuði. Nemendur sem eiga erfitt með að fara í skiptinám vegna veikinda eða fötlunar geta sótt um inngildingarstyrk byggðan á raunkostnaði.
- Hægt er að sækja um viðbótarferðastyrk til Alþjóðasviðs ef sýnt þykir að ferðastyrkur nægi ekki fyrir 70% af ferðakostnaði, miðað við hagkvæmasta ferðamátann.
- Sýni þátttakandi fram á að aðalferðamáti ferðarinnar hafi verið vistvænn (miðað við fjölda kílómetra) er veittur hærri ferðastyrkur, 417-1735 evrur.
Erasmus+ Menntaáætlun Evrópusambandsins, er ætlað að stuðla að auknu samstarfi meðal háskóla í Evrópu, styrkja Evrópu sem þekkingarsamfélag og styðja við mótun á samevrópsku, nútímavæddu háskólasamfélagi. Erasmus+ veitir nemendum evrópskra háskóla einstakt tækifæri til að öðlast alþjóðlega reynslu í námi sínu og skapa sér sérstöðu á vinnumarkaði. Að auki stuðlar áætlunin að jöfnum tækifærum til náms erlendis með sérstökum viðbótarstyrkjum til að mæta þörfum ólíkra nemenda.