Skip to main content

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs veitir heildstæða þjónustu og ráðgjöf til nemenda, kennara og deilda sviðsins. Þjónustan styður við alla þætti námsferlisins, allt frá umsóknum og inntöku, í gegnum nám og kennslu, til brautskráningar með áherslu á vandaða afgreiðslu nemendaerinda, skýra upplýsingagjöf og persónulega þjónustu. Einingin sinnir meðal annars umsýslu kennslu og prófa, rafrænum kennsluháttum, lokaritgerðum og brautskráningum, auk þess að veita stuðning við kennara og samstarf við deildir. Hún hefur einnig umsjón með alþjóðlegum málefnum nemenda og skiptinámi, og tryggir samræmi og gæði í kennsluskrá og námsferlum.

Markmið Nemenda- og kennsluþjónustu er að stuðla að faglegu, skilvirku og styðjandi námsumhverfi þar sem þjónusta, upplýsingaflæði og samstarf er í forgrunni.

Þjónustutorg Gimli

Bóka viðtal við nemendaþjónustu Félagsvísindasviðs

Gagnlegar upplýsingar fyrir nemendur Félagsvísindasviðs eru í Uglu (þarfnast innskráningar).

Spurt og svarað: Algengar fyrirspurnir Háskóli Íslands

Nýnemar

Hér finnurðu svör við mörgum af þeim spurningum sem kunna að vakna þegar þú hefur nám í Háskóla Íslands.

Þjónustumiðjuna HÍ

Þjónustumiðjan er upplýsingavefur sem inniheldur mikið magn efnis þar sem notendur geta fundið svör við flestum spurningum er varða starfsemi og þjónustu Háskólans. 

 

Þjónustutorg Gimli

Opið: Mánudag til föstudags kl. 09.00 til 15.00
Sími: 525-4500 
Netfang: nemfvs@hi.is
Bóka fund í gegnum bókunargátt

Við þjónustutorg í Gimli er lúga þar sem nemendur geta skilað verkefnum utan afgreiðslutíma.

""