Rannsóknarstofan er fræðasvið og starfsvettvangur kennara læknadeildar í fræðigreinunum lífefnafræði, sameindalíffræði og erfðafræði.
Á fræðasviðinu eru stundaðar grunnrannsóknir og rannsóknir á hagnýtri notkun þessara fræðigreina í læknisfræði og öðrum heilbrigðisvísindum. Auk þess að reka Lífefna- og sameindalíffræðistofu tengist fræðasviðið erfða- og sameindalæknisfræðideild og klínískri lífefnafræðideild við Landspítalann með samstarfssamningi Háskóla Íslands við sjúkrahúsið.
Kennarar eru með starfsaðstöðu í Læknagarði við Vatnsmýrarveg 16, Sturlugötu 8 og á Landspítalanum.
Forstöðumaður er Jón Jóhannes Jónsson prófessor.
Aðrir háskólakennarar eru:
- Eiríkur Steingrímsson prófessor
- Hans Tómas Björnsson dósent
- Ingibjörg Harðardóttir prófessor
- Óttar Rolfsson prófessor
- Reynir Arngrímsson prófessor
- Stefán Þ. Sigurðsson dósent
Sigríður Ísafold Haakanson verkefnastjóri hefur umsjón með skrifstofu.
Á rannsóknarstofunni starfar hópur nema í rannsóknatengdu námi og nýdoktorar í þjálfun.
Hafa samband:
Forstöðumaður: Jón Jóhannes Jónsson prófessor, jonjj@hi.is, s. 525-4845/824-5917
Skrifstofa: Sigríður Ísafold Haakanson verkefnastjóri, isafold@hi.is, 525-4830