Hvaða viðfangsefni vekja áhuga þinn og skipta þig máli? Hvað gætir þú hugsað þér að starfa við í framtíðinni? Í námsvalshjólinu getur þú smellt á geirana í hjólinu og fengið upplýsingar um allar námsgreinar sem eru í boði við HÍ. GrunnnámFramhaldsnám Show Um námsvalshjólið Námsvalshjólinu er ætlað að styðja nemendur við val á námi. Flokkun á námsleiðum gerir nemendum kleift að kynna sér nám út frá því viðfangsefni sem höfðar til áhugasviðs þeirra og val á námi verður um leið markvissara. Auk þess er ætlunin með hjólinu að draga úr brottfalli og tilfærslu nemenda milli námsleiða eftir að nám er hafið. Finna má allar námsleiðir háskólans í grunnnámi og meistaranámi í hjólinu. Námsvalshjólið einfaldar nemendum að finna námsleiðir sem mögulega tengjast þeim brautum sem þeir hafa valið sér í framhaldsskóla. Hjólið er hannað með þarfir nemenda í forgrunni. Með þróun þess verða tengsl á milli námsleiða sýnilegri, bæði innan fræðasviða Háskóla Íslands og þvert á sviðin. Nemendur fá því betri heildarsýn á námsframboð skólans og þá ótal möguleika sem þeim standa til boða í framtíðinni. Hjólið hefur verið þróað til að treysta að nemendur finni þær leiðir þar sem þeir njóta sín best og að menntun þeirra gagnist þar með sem mest íslensku samfélagi. Námsleiðir eru skilgreindar í 10 flokka út frá viðfangsefnum: Efnahagur, lög og reksturFjölmiðlar, upplýsingatækni og miðlunHeilsa, líkami og líðanKennsla, siðfræði og mannleg hegðunLífríki, umhverfi og auðlindirLíftækni og lyfSaga, menning, listir og trúSamfélag og stjórnmálTungumál og málvísindiVerkfræði, raunvísindi, tækni og tölur Námsvalshjólið nýtist jafnframt í náms- og starfsráðgjöf, bæði í Háskóla Íslands og í grunn- og framhaldsskólum. Námsvalshjólið er fyrsta sinnar tegundar hér á landi en svipuð verkfæri hafa verið notuð með góðum árangri erlendis. Hjólið á vef Háskóla Íslands byggist á fyrirmynd frá Kaupmannahafnarháskóla en hefur verið þróað og aðlagað námsframboði og kennslu í Háskóla Íslands. Auk þess styðst það við greiningu og flokkun sem unnin var innan atvinnulífsins. Við þróun þess var bæði haft samráð við fræðimenn í náms- og starfsráðgjöf innan Háskólans og fulltrúa frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Tengt efni Svona velur þú grunnnám Svona velur þú framhaldsnám Grunnnám – Hvað svo? facebooklinkedintwitter