Nemendur geta sótt um styrki fyrir stuttri starfsþjálfunardvöl eða rannsóknarvinnu (5-30 dagar) í gegnum Erasmus+ áætlunina. Upphæðirnar geta verið misjafnar eftir skólaárum.
Styrkupphæðir skólaárið 2022-2023
- Ferðastyrkur er 275-820€
- Styrkur fyrir stuttum dvölum (5-30 dagar) er 70€ á dag fyrstu 14 dagana, síðan 50€ á dag
Styrkupphæðir skólaárið 2023-2024
- Ferðastyrkur er 275-820€
- Styrkur fyrir stuttri dvöl (5-30 dagar) er 79€ á dag fyrstu 14 dagana, síðan 56€ á dag
Nemendur sækja um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar hjá Alþjóðasviði. Frestur til að sækja um styrkinn er til og með 1. apríl ár hvert (eða næsta virka dag ef umsóknarfrestur er á almennum frídegi). Heimilt er að sækja um eftir auglýstan umsóknarfrest en þeir sem sækja um fyrir 1. apríl hafa forgang við úthlutun styrkja.