Skip to main content

Vísinda- og nýsköpunarsvið - gátt

Um Vísinda- og nýsköpunarsvið

1. Styrkjaskrifstofa (A-144).
2. Skrifstofa nýsköpunar- og hugverka (A-146).
3. Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða (A-139).
4. Rannsóknainnviðir (A-137).

Rannsóknamat, sjóðir og rannsóknainnviðir

Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða: Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða sér um mat á rannsóknum og hefur umsýslu með rannsóknatengdum sjóðum við Háskóla Íslands. Hún sér um árlegt mat á störfum akademísks starfsfólks við ríkisháskóla og starfar með dómnefndum um akademískt hæfi við nýráðningar, framgang, gestakennara og klínískar nafnbætur. Önnur verkefni eru tölulegar greiningar á rannsóknum og IRIS/PURE.

Rannsóknarinnviðir: Öflugir rannsóknarinnviðir eru forsenda framúrskarandi vísinda og nýsköpunar og mynda grundvöll framþróunar í rannsóknum og vísindum. Háskóli Íslands styður við þekkingarsköpun og alþjóðlegt samstarf og hefur staðið að öflugri uppbyggingu á rannsóknarinnviðum í samstarfi við ýmsa aðila. Innviðir HÍ eru einnig mikilvægir fyrir menntun og þátttöku okkar í að takast á við samfélagslegar áskoranir og stuðla að framförum með nýsköpun.

Styrkir og nýsköpun

Styrkjaskrifstofa: Býður upp á sérfræðiráðgjöf um styrkumsóknir og hefur umboð til að framfylgja reglum Háskóla Íslands um móttöku, umsjón, stjórnun og fjárhagslega skýrslugerð vegna ytra fjármagns. Skrifstofan starfar náið með rannsóknastjórum fræðasviða. Styrkjaskrifstofa býður upp ráðgjöf varðandi rannsóknarverkefni og ber ábyrgð á eftirliti með þeim og að farið sé að reglum styrkveitenda. Nánari upplýsingar veitir grantsoffice@hi.is.

Skrifstofa nýsköpunar- og hugverka: Nýsköpun er stór þáttur í starfsemi Háskóla Íslands og á undanförnum árum hafa fjölmörg fyrirtæki verið stofnuð á grundvelli frumkvöðlastarfs, rannsókna og hugmynda innan veggja skólans. Skrifstofa nýsköpunar- og hugverka veitir starfsfólki og nemendum sem hafa áhuga á að feta nýsköpunarveginn ýmiss konar stuðning, meðal annars í formi ráðgjafar og aðstöðu. Auk þess styður háskólinn við samfélagslega nýsköpun með ýmsum námskeiðum og öðrum samstarfsverkefnum.

Hafðu samband
 

Styrkja- og sjóðaskrifstofa: grantsoffice@hi.is.

Skrifstofa nýsköpunar- og hugverka: inno@hi.is.

Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða: framtal@hi.is, rannsoknasjodir@hi.is og pure@hi.is.

Rannsóknainnviðir: rannsoknainnvidir@hi.is og opinvisindi@hi.is.

Sviðsstjóri er Halldór Jónsson

Starfsfólk sviðsins í símaskrá HÍ