Skip to main content

Samstarf við atvinnulíf og erlenda háskóla

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands á í öflugu og nánu samstarfi við íslenskt atvinnulíf, sem gegnir lykilhlutverki í allri starfsemi deildarinnar. Samstarfið birtist á fjölbreyttan hátt, m.a. í verkefnavinnu nemenda, rannsóknasamstarfi, þátttöku stjórnenda og sérfræðinga í kennslu, fyrirtækjaheimsóknum og í gegnum víðtæka starfsþjálfun.

Nemendur fá þannig einstakt tækifæri til að vinna með raunveruleg viðfangsefni úr íslensku atvinnulífi, kynnast áskorunum fyrirtækja og stofnana og byggja upp tengslanet á meðan á námi stendur. Stjórnendur og sérfræðingar úr atvinnulífinu miðla jafnframt reynslu sinni inn í kennsluna og styrkja þannig tengingu fræða og framkvæmdar.

Deildin á í virku samstarfi við fjölda fyrirtækja, ráðuneyta og stofnana og gegnir mikilvægu hlutverki í að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Samstarfið skapar verðmæti fyrir bæði nemendur og samstarfsaðila og stuðlar að nýsköpun, þekkingarmiðlun og þróun.

Starfsþjálfun

Viðskiptafræðideild býður upp á víðtæka starfsþjálfun í samstarfi við yfir 70 fyrirtæki, ráðuneyti og stofnanir. Starfsþjálfunin er mikilvægur hluti af námi nemenda, þar sem þeir fá tækifæri til að takast á við raunveruleg verkefni, öðlast dýrmæta starfsreynslu og prófa þekkingu sína í framkvæmd. Fjöldi nemenda fær jafnframt starf hjá samstarfsaðilum í kjölfar starfsþjálfunar, eða umsagnir frá stjórnendum sem nýtast vel þegar sótt er um störf að loknu námi. Nemendur sem eru komnir vel á veg í námi og hafa sýnt fram á góðan námsárangur geta sótt um þær stöður sem eru í boði á hverju misseri. Hægt er að lesa meira um starfsþjálfun hér.

Fyrirtæki, ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eru hvött til að hafa samband með því að senda tölvupóst á vidskipti@hi.is.   

Alþjóðlegt samstarf

Viðskiptafræðideild starfar í alþjóðlegu umhverfi og á í virku samstarfi við fjölmarga erlenda háskóla, rannsakendur og rannsóknastofnanir. Samstarfið nær til rannsókna, nemenda- og starfsmannaskipta og fjölbreyttra alþjóðlegra verkefna.

Nemendum deildarinnar stendur til boða að taka hluta af námi sínu erlendis í gegnum skiptinám og tækifærin eru fjölmörg fyrir nemendur þar sem HÍ á í samstarfi við um 400 erlenda háskóla. Á sama tíma sækir fjöldi erlendra skiptinema deildina heim ár hvert. Hluti námskeiða er kenndur á ensku, sem styrkir alþjóðlegt námsumhverfi og undirbýr nemendur fyrir alþjóðlegan vinnumarkað.

Alþjóðasvið veitir upplýsingar og aðstoð vegna þátttöku í fjölþjóðlegum samstarfsáætlunum í menntamálum. Sviðið þjónar stúdentum sem fara utan sem skiptinemar og aðstoðar þá sem hingað koma

Deildin leggur ríka áherslu á að þróa og efla alþjóðleg tengsl sín með það að markmiði að tryggja að námið standist kröfur fremstu viðskiptaháskóla heims og veiti nemendum samkeppnisforskot á alþjóðavettvangi.