Almenn lokapróf eru haldin á tímabilinu 25. nóvember til 9. desember og á tímabilinu 28. apríl til 13. maí eftir nánari ákvörðun deilda í samráði við prófstjóra.
Sjúkrapróf og endurtökupróf eru haldin í kjölfar almennra próftímabila í desember og maí samkvæmt nánari ákvörðun prófstjóra.
Upphafs- og lokadagsetningar próftímabila geta verið breytilegar, sjá nánar í háskóladagatali.
Próftafla haustmisseris er birt í lok september. Próftafla vormisseris er birt í lok janúar.
Próftafla fyrir sjúkrapróf í kjölfar almennra próftímabila í desember og maí er birt eins fljótt og kostur er, eða um leið og skráningar liggja fyrir.
Upplýsingar um prófstaði á próftímabilum koma fram á þessari síðu, undir hlutanum Prófstaðir og birting próftöflu.