Skip to main content

Umsóknarferlið - Grunnnám

  • Fyrra umsóknartímabilið fyrir grunnnám, HAUST, er vegna náms sem hefst á haustmisseri, með umsóknarfresti til 5. júní ár hvert
  • Seinna umsóknartímabilið grunnnám, VOR, er vegna náms sem hefst á vormisseri, með umsóknarfresti til 30. nóvember
  •  1 

    Inntökuskilyrði

    Stúdentspróf eða annað sambærilegt próf frá erlendum skóla. Sjá nánar um inntökuskilyrði í grunnnám. 

    Í læknisfræði og sjúkraþjálfunarfræði þurfa nemendur að taka aðgangspróf fyrir háskólastig A-próf. Umsóknarfrestur í inntökuprófið er til og með 20. maí. Þátttökugjald er 20.000 krónur.

    Við skráningu í prófið þarf að heimila HÍ að sækja afrit af stúdentsprófsskírteini í gegnum Innu. Ef heimild er ekki veitt á umsóknareyðublaðinu þá þarf að skila Nemendaskrá HÍ staðfestingu á stúdentsprófi fyrir 20. maí.

  •  2 

    Sótt um 

    Sótt er um skólavist á rafrænu eyðublaði á vef HÍ.

    Opið er fyrir umsóknir frá:

    • byrjun mars til og með 5. júní vegna haustmisseris
    • 15. september til 30. nóvember vegna vormisseris (takmarkað námsval)

    Eingöngu er tekið við rafrænum umsóknum.

    Ef sótt er um nám oftar en einu sinni gildir einungis nýjasta umsóknin.

  •  3 

    Stúdentsprófsskírteini

    Stúdentsprófsskírteini þurfa að fylgja öllum umsóknum um grunnnám. 

    Umsækjendur geta gefið HÍ heimild til að sækja skírteini í gegnum Innu (þar sem það er hægt). Ef sá möguleiki kemur ekki upp í umsókn þá þarf að skila staðfestu afriti af stúdentsprófi á pappír (með undirritun og stimpli í lit frá skóla) til Nemendaskrár, 3.hæð Háskólatorgs eða á Þjónustuborði Háskólatorgs.

    Hægt er að koma með frumrit og biðja starfsfólk um að ljósrita það og staðfesta gegn 350 kr. gjaldi.

    Ekki er hægt að veita heimild fyrir rafrænum skilum í Innu eftir að umsókn hefur verið send. 

    Síðasti skiladagur stúdentsprófsskírteinis er 12. júní. 

  •  4 

    Undanþága frá stúdentsprófi

  •  5 

    Veflykill til að fylgjast með umsókn

    Við lok skráningu umsóknar þarf að staðfesta umsóknina. Að því loknu fá umsækjendur sendan veflykil í tölvupósti sem þarf að varðveita vel

    Á upplýsingasíðu fyrir umsækjendur þarf að fylgjast með framgangi umsóknarinnar og slá þar inn kennitölu og veflykil.

    Veflykillinn er einungis notaður til að komast inn á þessa síðu.

    Ef veflykill glatast getur umsækjandi haft samband við Nemendaskrá HÍ eða Þjónustuborðið Háskólatorgi.

    Athugið að svar við umsókn er einungis rafrænt inn á upplýsingasíðunni.

  •  6 

    Skrásetningargjald

    Árlegt skrásetningargjald er 75.000 kr. (55.000 kr. ef sótt er um innritun á vormisseri).

    Sé umsókn samþykkt birtist rafrænn reikningur fyrir skrásetningargjaldi í heimabanka umsækjanda. 

    Reikninginn þarf að greiða í síðasta lagi:

    • 4. júlí vegna skráningar fyrir heilt skólaár
    • 6. janúar vegna skráningar á vormisseri

    Ef greiðsluseðillinn birtist ekki í heimabankanum þínum getur þú sent fyrirspurn til Nemendaskrár. 

    Skrásetning til náms við HÍ tekur gildi þegar skrásetningargjaldið er greitt. Gjaldið er ekki endurgreitt. 

    Nánar um skrásetningargjöld

  •  7 

    Búin/n að borga skrásetningu, hvað svo?

    Sólarhring eftir að skrásetningargjaldið hefur verið greitt geta nýir nemendur við HÍ farið inn á upplýsingasíðu fyrir umsækjendur og sótt notendanafn og lykilorð fyrir Uglu, innri vef Háskóla Íslands.

    Nýja notandanafnið og lykilorðið virkjast á tveimur klukkustundum, að þeim tíma liðnum getur þú byrjað að nota Ugluna. 

  •  8 

    Hver er þessi Ugla?

    Ugla er innri vefur HÍ. Í Uglunni nálgast þú allar upplýsingar um námið þitt og námsframvindu. Þú getur haft samskipti við kennara, svið og deildir. Þú getur séð kennsluskrá, stundatöfluna, námsferil, námskeið og einkunnir. 

    Í Uglunni eru líka upplýsingar um þjónustu, tilkynningar og fræðslu. Þar er að finna smáauglýsingar, kerfi og verkfæri sem þú getur nýtt og margt fleira. 

    Hér færð þú upplýsingar um kerfi og forrit sem þú getur fengið aðgang að þegar aðgangur þinn í Uglu hefur verið virkjaður. 

Gagnlegir tenglar