![Ástráður - kynfræðslufélag læknanema - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___fr_ttum/public/ame18/laek_laeknanemar_1920_0.jpg?itok=asLEXn-5)
Ástráður - Kynfræðslufélag læknanema gegnir öflugu forvarnarstarfi. Forvarnastarfið byggist á skólaheimsóknum þar sem áhersla er lögð á fræðslu um kynsjúkdóma, getnaðarvarnir og fóstureyðingar.
Læknanemar hafa síðustu ár farið í fjölda heimsókna í framhaldsskóla landsins og grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.
Miðað er við að heimsækja nýnema í framhaldsskólunum því þannig er hægt að ná til sem flestra.
Upplýsingar og fréttir af starfsemi félagsins má nálgast á Facebook
Ástráður - Kynfræðslufélag læknanema hlaut fræðslu-og vísindaviðurkenningu Siðmenntar árið 2017 fyrir starf sitt.
Á skólaárinu 2018-2019 fóru læknanemar í eitthundrað þrjátíu og eina heimsókn með forvarnarfræðslu í skóla.
![""](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa/public/ame18/1920_kri8132_1.jpg?itok=DwAFnSOA)
Tengt efni