Háskóli Íslands, febrúar 2026.
Markmið og skilgreiningar
Markmið efnisstefnu Háskóla Íslands er að tryggja að vefsvæðin hi.is, english.hi.is, Ugla og Þjónustumiðja hafi skýrt skilgreinda markhópa og hlutverk. Stefnan á að stuðla að því að starfsfólk viti hvaða efni á heima á hverjum vef fyrir sig og að ábyrgð á ritstjórn sé skýr. Með þessu er tryggt að efni hvers vefs styðji við hlutverk hans, sé aðgengilegt, skýrt og í samræmi við þarfir skilgreindra markhópa. Stefnunni er ætlað að auðvelda starfsfólki og öðrum að átta sig á hvert eigi að leita með efni sem þarf að koma á framfæri og stuðla þannig að samræmdri og ábyrgri meðferð upplýsinga á vefjum Háskólans.
Efnisstefna HÍ er systurstefna vefstefnu HÍ en í henni er nánar fjallað um ábyrgð, verklagsreglur og hlutverk einstakra vefja s.s. stofnanavefja, ráðstefnuvefja og verkefnavefja. Leiðbeiningar um skrif fyrir vefina er að finna í kaflanum rödd og tónn í hönnunarstaðli HÍ.
Ef upp koma álitamál um túlkun efnisstefnu og vefstefnu þá gildir vefstefna HÍ. Efnisstefnan er endurskoðuð eftir þörfum að frumkvæði vefstjóra, ritstjóra ytri vefja, ritstjóra Uglu og ritstjóra Þjónustumiðju.