Skip to main content

Háskólasamstæða Háskóla Íslands

Um háskólasamstæðu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Þann 1. júní 2026 voru samþykkt á Alþingi breytingar á lögum um opinbera háskóla sem felur í sér heimild Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum að stofna háskólasamstæðu

Um háskólasamstæðu

Fyrsta háskólasamstæða landsins tók til starfa undir nafni Háskóla Íslands 1. júlí 2026 en með stofnun hennar er lögð áhersla á að efla háskólastarf á landinu öllu. Háskóli Íslands og Háskóli Íslands á Hólum mynda saman háskólasamstæðuna sem sameinar breidd, sérþekkingu og öflugt fræðastarf á landsvísu. Með samstarfinu verða til ný tækifæri til kennslu, rannsókna, nýsköpunar sem nýtast nemendum, starfsfólki og samfélaginu öllu.

Innan nýju háskólasamstæðunnar verður Háskóli Íslands samstæðuháskóli en Háskóli Íslands á Hólum starfar sem aðildarháskóli. Háskólasamstæðan byggir á þeirri sýn að fjölbreytt og öflugt háskólastarf styrkist með samstarfi. Innan hennar nýtur hver eining sérstöðu sinnar og faglegs sjálfstæðis um leið og hún tekur þátt í stærra þekkingarsamfélagi. Þannig sameinast breið fræðastarfsemi Háskóla Íslands og sérhæfð þekking Háskóla Íslands á Hólum í öflugri heild sem nær til alls landsins.

Háskólasamstæðan starfar undir sameiginlegri stjórn með einum rektor og einu háskólaráði sem fer með yfirstjórn samstæðunnar. Jafnframt starfar sérstakt samstarfsráð aðildarháskólanna sem er vettvangur samráðs og samstarfs um málefni sem varða þróun, stefnumótun og hagsmuni þeirra. Með þessu fyrirkomulagi eru tengsl skólanna skýr og sterk um leið og sjálfstæði, sérstaða og fræðilegt hlutverk þeirra er tryggt.

Rektor Háskóla Íslands á Hólum er Silja Bára R. Ómarsdóttir, sem gegnir jafnframt embætti rektors Háskóla Íslands, og forseti Háskóla Íslands á Hólum er Hólmfríður Sveinsdóttir.

Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands heyrir undir Háskóla Íslands á Hólum. Með því er ætlunin að styrkja enn frekar rannsóknastarf samstæðunnar um land allt og skapa öflugan vettvang fyrir þekkingarsköpun, rannsóknir og samstarf við samfélög, atvinnulíf og stofnanir víða um land.

Ný tækifæri í þágu íslensks samfélags

Háskólasamstæðan stuðlar að auknu samstarfi milli fræðigreina og starfseininga, sameiginlegri nýtingu innviða og öflugra rannsóknarumhverfi. Hún auðveldar þróun nýrra námsleiða, fjölbreyttari námsmöguleika og aukin tækifæri nemenda til að njóta kennslu, rannsóknatækifæra og sérfræðiþekkingar innan alls samstæðunnar. Jafnframt skapast sterkari forsendur fyrir alþjóðlegu samstarfi, aukinni samkeppnishæfni og þátttöku í rannsókna- og nýsköpunarverkefnum á alþjóðavettvangi.

Mikil áhersla er lögð á að efla tengsl háskólanna við samfélagið. Háskólasamstæðan styður við nýsköpun, atvinnuþróun og sjálfbæra uppbyggingu með því að tengja saman fræðastarf, rannsóknir og þarfir samfélagsins. Hún skapar aukin tækifæri til samstarfs við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög og styrkir þannig hlutverk háskólanna sem drifkrafta framfara og verðmætasköpunar.

Háskólasamstæðan endurspeglar jafnframt hlutverk Háskóla Íslands sem þjóðarháskóla. Með starfsemi sem spannar ólík landssvæði, fjölbreytt fræðasvið og sérhæfða þekkingu verður til öflugur vettvangur fyrir menntun, rannsóknir og nýsköpun sem þjónar samfélaginu öllu. Samstæðan styrkir stöðu Íslands sem þekkingarsamfélags og eykur getu íslenskra háskóla til að takast á við áskoranir framtíðarinnar með öflugu samstarfi, framúrskarandi rannsóknum og alþjóðlegum tengslum.

Með sameiginlegri sýn, metnaði og skýrri áherslu á styrkleika einstakra háskóla verður háskólasamstæða Háskóla Íslands öflugur vettvangur fyrir menntun, rannsóknir og þekkingarsköpun í þágu samfélagsins. Samstæðan mun styrkja stöðu Íslands sem þekkingarsamfélags og skapa aukin tækifæri til framfara og samstarfs um land allt.

Nánari upplýsingar um háskólasamstæðu Háskóla Íslands og Háskóla Íslands á Hólum.

Skipurit háskólasamstæðu

Með breytingum á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008, sem tóku gildi 1. júlí 2026, var í fyrsta sinn skapaður lagagrundvöllur fyrir háskólasamstæður á Íslandi. Samkvæmt nýrri 4. gr. a laganna geta tveir eða fleiri sjálfstæðir og viðurkenndir háskólar sameinast undir merkjum háskólasamstæðu sem lýtur sameiginlegri yfirstjórn.

Samstæðuháskólinn fer með yfirstjórn, stjórnsýslu og stoðþjónustu en aðildarháskólar halda sérstöðu sinni og ákveðnu sjálfstæði í starfsemi sinni. Þá er kveðið á um samstarfsráð sem gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun og þróun náms, kennslu og rannsókna.

Í sérákvæðum laganna er kveðið á um að Háskóli Íslands verði samstæðuháskóli og Háskóli Íslands á Hólum aðildarháskóli innan samstæðunnar. Háskóli Íslands á Hólum starfar áfram undir nýju heiti og með sérstaka stöðu og sérkenni innan samstæðunnar.