![Rannsóknir við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/textas__a_-_efsta_mynd/public/margstefans/kri_hjukrun_190206_004.jpg?itok=mCgj3aR2)
Kennarar við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild stunda fjölbreyttar rannsóknir og eiga öflugt samstarf við innlenda og erlenda vísindamenn.
Rannsóknavirkni kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild er í miklum vexti. Við deildina eru stundaðar rannsóknir á heimsmælikvarða í samstarfi við fjölmarga erlenda háskóla og fræðimenn. Sérsvið kennara eru fjölbreytt og rannsóknir þeirra taka til alls æviskeiðs mannsins, heilsu og þróunar heilbrigðisþjónustu. Kennarar við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild birta greinar í virtum tímaritum og gefa út bækur sem m.a. nýtast nemendum í námi sínu.
Nemendur í framhaldsnámi við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild fá tækifæri til að stunda rannsóknir undir leiðsögn framúrskarandi vísindafólks.
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði
Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði var starfrækt við deildina á árunum 1997 - 2017. Stofnunin var vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum hjúkrunar- og ljósmóðurfræði. Hlutverk stofnunarinnar voru að auka sýnileika rannsókna í hjúkrunar- og ljósmóðurfræðum, m.a. með ýmsum viðburðum, og styðja við og efla rannsóknavirkni kennara við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Starfsemi stofnunarinnar hefur verið lögð í dvala um óákveðinn tíma og verkefni hennar hafa færst til skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.