Fyrirlestraröð haust 2026 Fyrirlestrar fara fram á íslensku og á Teams Árangursrík vinnubrögð í háskóla: Miðvikudaginn 2. september kl. 13:00 - á Teams - skráning hefst 19. ágúst Í þessum fyrirlestri verður farið yfir atriði sem styrkja nemendur í að tileinka sér skilvirk vinnubrögð, færni og þekkingu sem stuðla að ánægju og velgengni í námi við HÍ. Háskólanám byggir á skipulagi, aga og þrautseigju en líka á gleði, vellíðan og góðum tengslum. Það er gott veganesti að kynna sér í upphafi háskólanáms gagnleg atriði, skoða eigin vinnubrögð og vega og meta hvort hægt sé að gera gott betur. Meiri tími, betra skipulag, meiri árangur - Tímastjórnun og skipulag: Fimmtudaginn. 3. september kl. 13:30 - á Teams - skráning hefst 20. ágúst Í þessum fyrirlestri verður farið yfir mikilvægi þess að hafa gott skipulag og tímastjórnun. Skipulag og góð tímastjórnun eru lykilþáttur að velgengni í háskólanámi. Farið verður yfir gerð tímaáætlana, áhrif tímaþjófa, ávinning af tímastjórnun og gefin gagnleg ráð varðandi skipulag. Lestur og glósur: Þriðjudaginn 8. september kl. 10:30 - á Teams - skráning hefst 25. ágúst Í þessum fyrirlestri verður fjallað um lestur námsefnis, mikilvægi upprifjunar og leiðir til að lesa og skilja texta. Einnig verður farið yfir ýmiskonar glósuaðferðir. Árangursrík vinnubrögð í háskóla: Fimmtudaginn 10. september kl. 11:00 - á Teams - skráning hefst 27. ágúst Í þessum fyrirlestri verður farið yfir atriði sem styrkja nemendur í að tileinka sér skilvirk vinnubrögð, færni og þekkingu sem stuðla að ánægju og velgengni í námi við HÍ. Háskólanám byggir á skipulagi, aga og þrautseigju en líka á gleði, vellíðan og góðum tengslum. Það er gott veganesti að kynna sér í upphafi háskólanáms gagnleg atriði, skoða eigin vinnubrögð og vega og meta hvort hægt sé að gera gott betur. Meiri tími, betra skipulag, meiri árangur - Tímastjórnun og skipulag: Þriðjudaginn 15. september kl. 11:00 - á Teams - skráning hefst 1. september Í þessum fyrirlestri verður farið yfir mikilvægi þess að hafa gott skipulag og tímastjórnun. Skipulag og góð tímastjórnun eru lykilþáttur að velgengni í háskólanámi. Farið verður yfir gerð tímaáætlana, áhrif tímaþjófa, ávinning af tímastjórnun og gefin gagnleg ráð varðandi skipulag. Að forgangsraða eða fresta? - Fyrirlestur um frestun: Fimmtudaginn 24. september kl. 14:00 - á Teams - skráning hefst 10. september Farið verður yfir helstu atriði er tengjast frestun. Frestun (e. procrastination) er tilhneiging til að fresta því sem nauðsynlegt er að gera til að ná einhverju markmiði þ.e. að vinna ekki þau verkefni sem liggja fyrir. Frestun eða tilhneiging til hennar hefur mikil áhrif á nám háskólanema. Farið verður stuttlega yfir helstu ástæður frestunar og hagnýt ráð hvernig hægt er að vinna má gegn frestun. Prófundirbúningur og próftaka: Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 13:00 - á Teams - skráning hefst 21. október Þessi fyrirlestur fjallar um atriði sem styrkja nemendur í því að takast á við próf og prófatímabil á heilbrigðan hátt. Farið er yfir þætti sem snúa að persónulegum undirbúningi nemenda, atriði sem varða próftökuna sjálfa og hvað sé gott að hafa í huga varðandi mismunandi prófform og fjölbreytta próftöku. Að hefja skrif á lokaverkefni í grunnnámi BA, BS, B.ed. Við bjóðum upp á fyrirlestra um hagnýt vinnubrögð við skrif á lokaverkefni í grunnnámi. Farið er yfir gagnleg atriði svo sem samskipti við leiðbeinanda, skipulag og gefnar ábendingar um vinnuferlið. Staðnámskeið: • Miðvikudaginn 9. september kl. 13:00 - 15:00 á staðnum. Opnað verður fyrir skráningu 26. ágúst (hámarksfjöldi 15) • Þriðjudaginn 15. september kl. 13:00 - 15:00 á staðnum. Opnað verður fyrir skráningu 1. september (hámarsfjöldi 15) Fjarnámskeið (Teams): • Fimmtudaginn 3. september kl. 10:00 - 12:00 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 20. ágúst. • Fimmtudaginn 10. september kl. 13:00 - 15:00 á Teams - Opnað verður fyrir skráningu 27. ágúst • Miðvikudaginn 16. september kl. 13:00 - 15:00 á Teams - á ENSKU - Opnað verður fyrir skráningu 2. september Fyrirlestrar fara fram á íslensku CV - vinnustofa - Undirbúningur fyrir atvinnulífið Undirbúningur fyrir atvinnulífið – hópráðgjöf fyrir háskólanema Ertu að klára námið og ekki viss hvernig þú átt að stíga næstu skref? Ertu að leita af sumarstarfi? Viltu verða öruggari í atvinnuviðtölum og í umsóknarferlinu? Boðið er upp á hagnýta hópráðgjöf fyrir nemendur við Háskóla Íslands þar sem þú færð tækifæri til að undirbúa þig fyrir vinnumarkaðinn undir handleiðslu nemendaráðgjafa. Í hópráðgjöfinni verður m.a. farið yfir: • Hvernig þú getur greint eigin styrkleika og færni. • Undirbúningur fyrir umsóknarferlið og atvinnuviðtöl. Staðnámskeið: • Fimmtudaginn 17. september kl. 13:00 - 15:00 á staðnum. Skráning hefst 2. september • Miðvikudaginn 28. októbeber kl. 13:00 - 15:00 á staðnum. Skráning hefst 14. október Staðsetning: HT-300, 3. hæð Háskólatorgi Nánari upplýsingar: radgjof@hi.is facebooklinkedintwitter