Nemendur sjá sjálfir um að hafa samband við fyrirtæki eða stofnanir og útvega sér vilyrði fyrir starfsþjálfun. Þeir geta einnig sótt um auglýsta starfsþjálfun, ýmist í gagnagrunnum fyrirtækja sem halda úti vefsíðum með starfsþjálfunarmöguleikum eða möguleika sem Skrifstofa alþjóðasamskipta vekur sérstaka athygli á.
Þegar nemandi hefur fengið vilyrði fyrir starfsþjálfun hjá fyrirtæki eða stofnun getur hann sótt um Erasmus+ styrk hjá Skrifstofu alþjóðasamskipta.