Skip to main content

Efst á baugi: fyrirlestraröð Menntavísindasviðs 2025 - 2026

Efst á baugi: fyrirlestraröð Menntavísindasviðs 2025 - 2026 - á vefsíðu Háskóla Íslands

Í ljósi þess að menntamál hafa verið mikið til umræðu að undanförnu ýtir Menntavísindasvið HÍ úr vör fyrirlestraröðinni Efst á baugi: fyrirlestraröð Menntavísindasviðs 2025 - 2026. Rannsakendur úr fjölbreyttum áttum innan Menntavísindasviðs stíga á stokk og veita innsýn í kraumandi rannsóknir sínar innan menntavísinda. Á meðal viðfangsefna er farsæld barna, gæði kennslu, heilsa og fleira. 

Stefnt er að því að halda einn fyrirlestur í mánuði og er hver viðburður 90 mínútur. Fyrirlestrarnir fara fram kl. 15:00 - 16:30 flestir í stofu 114 í Sögu. Hver viðburður hefst á ávarpi, erindi sérfræðings og endað er á umræðum. Fyrsti fyrirlestur var haldinn 16. október 2025 og mun síðasti fyrirlestur fara fram í maí 2026 og eru því sex talsins. 

Efst á baugi: fyrirlestraröð Menntavísindasviðs 2025 - 2026

Í ljósi þess að menntamál hafa verið mikið til umræðu að undanförnu ýtir Menntavísindasvið HÍ úr vör fyrirlestraröðinni Efst á baugi: fyrirlestraröð Menntavísindasviðs 2025 - 2026. Rannsakendur úr fjölbreyttum áttum innan Menntavísindasviðs stíga á stokk og veita innsýn í kraumandi rannsóknir sínar innan menntavísinda. Á meðal viðfangsefna er farsæld barna, gæði kennslu, heilsa og fleira.

Hvað skiptir máli fyrir farsæld barna?

Menntakerfi á tímamótum - alþjóðlegar áskoranir og tækifæri | 2024 - 2025