Skip to main content

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
13. maí 2025 13:00 til 16:15
Hvar 

Askja

N-132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Málþingið Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna verður haldið þann 13. maí í stofu N-132 í Öskju, Háskóla Íslands, í samstarfi Menntavísindasviðs HÍ og Aldins, samtaka eldri borgara gegn loftslagsvá.

Meginmarkmið málþingsins er að varpa ljósi á tengsl hollra skólamáltíða, umhverfis og líðan barna í námi og starfi.  Málþingið er öllum opið.

Finnski prófessorinn Päivi Palojoki verður aðalfyrirlesari á málþinginu. Palojoki hefur um árabil leitt rannsóknir við Uppeldis- og menntavísindasvið Háskólans í Helsinki um tengsl heimilisfræðikennslu, náms og menningar. Erindi sitt kallar hún Gildi skólamáltíða - hagnýt ráð byggð á 80 ára reynslu og rannsóknum í Finnlandi.

Erindi Palojoki er fimmta erindi fyrirlestraraðar Menntavísindasviðs HÍ og ber heitið: Menntakerfi á tímamótum – alþjóðlegar áskoranir og tækifæri. Þar sem leiðandi alþjóðlegir sérfræðingar stíga á stokk og deila reynslu annarra þjóða.

Að mati Palojakis er hagnýt þekking heimilisfræðikennara undirstaða þess að ná árangri í kennslu. Sjálf er prófessor Palojoki með Msc gráðu í heimilisfræðikennslu og PhD í uppeldis- og kennslufræðum

Aðrir fyrirlesarar á málþinginu verða Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri sem fjalla mun um mikilvægi gjaldfrjálsra skólamáltíða og jöfn tækifæri til náms, Anna Sigríður Ólafsdóttir prófessor við Menntavísindasvið HÍ og Uppsalaháskóla, Hildur Jóhannesdóttir fyrrverandi skólastjóri í Dalskóla  og Guðni Kristmannsson matráður í Hlíðaskóla. Laufey Steingrímsdóttir prófessor emeritus kynnir starfsemi Aldins og fulltrúi Alþjóðlega Skólamálatíðabandalagsins ávarpar málþingið.

Í pallborðsumræðum verða m.a. fulltrúi frá Heimili og skóla og sænski prófessorinn Anna Karin Lindroos sem hefur rannsakað næringu skólabarna og gildi skólamáltíða í Svíþjóð. Fengur er að því fyrir íslenskt skólafólk að fá sjónarhorn og þekkingu frá færustu sérfræðingum Finna og Svía  á gildi gjaldfrjálsra skólamáltíða, þeim þjóðum sem búa að lengstu og bestu reynslu af þeirri þjónustu.

Fundarstjórar verða Laufey Steingrímsdóttir frá Aldin og Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ.

.

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna