Tilgangur sjóðsins er að renna styrkum stoðum undir starfsemi Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) og stuðla að vexti og viðgangi stofnunarinnar. Tilgangi sínum nær sjóðurinn með því að veita styrki, fjárframlög og annan stuðning við verkefni á eftirfarandi sviðum: Rannsóknir á erlendum tungumálum: kennslufræði erlendra mála, máltaka, táknfræði, þýðingarfræði, málfræði, málvísindi, menningarfræði, bókmenntir og notagildi tungumála í atvinnulífinu. Útgáfa ritverka á fræðasviðum SVF, ráðstefnu- og fyrirlestrahald. Þróun kennslugagna í erlendum tungumálum. Samvinna við erlendar stofnanir á fræðasviðum SVF. Önnur verkefni sem tengjast starfsemi SVF að mati sjóðsstjórnar. Sjóðurinn var stofnaður árið 2003 af Háskóla Íslands og Kaupþingi banka. Einnig þeir aðilar sem gerðust sérstakir styrktaraðilar sjóðsins fyrir 15. apríl 2005 teljast gagnvart sjóðnum einnig til stofnenda hans. Þeir eru meðal annars: Ístak, Faxaflóahafnir, Icelandair, Hjalti Geir Kristjánsson, Hedorfs Fond, auk fjölmargra einstaklinga. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn. Stjórn sjóðsins Fagráð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur (SVF) skipar sjóðnum níu manna stjórn, til tveggja ára í senn. Sjóðsstjórn kýs formann úr sínum hópi og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Sjóðsstjórn skipa frá hausti 2010: Vigdís Finnbogadóttir Ásmundur Stefánsson Guðrún Lárusdóttir Hrönn Greipsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Salvör Jónsdóttir Sigurður Helgason Vésteinn Ólason Þórður Sverrrisson Staðfest skipulagsskrá Staðfest skipulagsskrá Styrktarsjóðs Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur facebooklinkedintwitter