Markmið sjóðsins er að styrkja doktorsnema við deildir Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, einkum þá sem eru á lokastigum náms. Menntasjóður Hugvísindasviðs er safn sjóða sem tengjast fræðigreinum sem tengjast Hugvísindasviði og eru sameinaðir til þess að styðja við doktorsnám á Hugvísindasviði. Sjóðirnir eru: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943). Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960). Minningarsjóður norskra stúdenta (1948). Norðmannsgjöf (1961). Sjóðanúmer 931. Sögusjóður stúdenta (1930). Stjórn sjóðsins Stjórn sjóðsins er skipuð fimm mönnum. Það eru forseti Hugvísindasviðs og deildarforsetar deilda sviðsins (Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild, Mála- og menningardeild og Sagnfræði- og heimspekideild). Forseti Hugvísindasviðs er formaður stjórnar. Í stjórninni sitja: Guðmundur Hálfdánarson, ghalfd@hi.is Torfi Tulinius, tht@hi.is Oddný Sverrisdóttir, oddny@hi.is Steinunn Kristjánsdóttir, sjk@hi.is Gylfi Magnússon, gylfimag@hi.is Sólveig Anna Bóasdóttir, solanna@hi.is Staðfest skipulagsskrá SKIPULAGSSKRÁ fyrir Menntasjóð Hugvísindasviðs 1. gr. Nafn sjóðs og uppruni Sjóðurinn heitir Menntasjóður Hugvísindasviðs. Sjóðurinn er safn sjóða sem tengjast fræðigreinum sem tengjast Hugvísindasviði og eru sameinaðir til þess að styðja við doktorsnám á Hugvísindasviði. Sjóðirnir eru: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943). Sjóðanúmer 542. Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960). Sjóðanúmer 979. Minningarsjóður norskra stúdenta (1948). Sjóðanúmer 683. Norðmannsgjöf (1961). Sjóðanúmer 931. Sögusjóður stúdenta (1930). (Ekki með staðfesta skipulagsskrá). 2. gr. Heimilisfang Sjóðurinn er sjálfseignarstofnun í umsjá og vörslu Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Heimili og varnarþing sjóðsins er í Reykjavík. 3. gr. Tilgangur og markmið sjóðsins Markmið sjóðsins er að styrkja doktorsnema við deildir Hugvísindasviðs Háskóla Íslands, einkum þá sem eru á lokastigum náms. 4. gr. Stofnandi Sjóðurinn er stofnaður vegna sameiningar fimm annarra sjóða, sem höfðu verið óvirkir um margra ára skeið og taldir eru upp í 1. grein. 5. gr. Stofnframlag og tekjur sjóðsins Eign sjóðsins er samanlögð eign sjóðanna sem nefndir eru í 1. grein samkvæmt nýjasta ársuppgjöri sem liggur fyrir en það er í árslok 2017. Stofnfé sjóðsins er 63.308.337 kr., þar af eru 20.539.582 kr. í óbundnum höfuðstól og laus til ráðstöfunar. Tekjur sjóðsins eru vaxtatekjur. Sjóðurinn tekur við gjöfum og framlögum. Styrktarsjóðir Háskóla Íslands annast ávöxtun sjóðsins og skal hún vera sem hagkvæmust á hverjum tíma og taka mið af fjárfestingarstefnu Styrktarsjóða Háskóla Íslands, að öðru leyti en getið er um í 1. mgr. Ef stjórn sjóðsins ákveður að greiða ekki út styrki bætast þeir fjármunir sem lausir voru til styrkveitingar það ár við þá sem lausir eru til ráðstöfunar árið eftir. 6. gr. Stjórn Stjórn sjóðsins er skipuð fimm mönnum. Það eru forseti Hugvísindasviðs og deildarforsetar deilda sviðsins (Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, Íslensku- og menningardeild, Mála- og menningardeild og Sagnfræði- og heimspekideild). Forseti Hugvísindasviðs er formaður stjórnar. Við styrkveitingar skal taka mið af tilgangi og markmiði sjóðsins. Stjórnarstörf eru ólaunuð. Stjórnarfundir eru lögmætir ef meirihluti stjórnar sækir fund. Mikilvægar ákvarðanir má þó ekki taka án þess að allir stjórnarmenn hafi fjallað um málið, sé þess nokkur kostur. 7. gr. Fundarboðun Formaður stjórnar skal boða til stjórnarfunda. Forseti Hugvísindasviðs gegnir formennsku í sjóðnum, en stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að öðru leyti. Hlutverk stjórnar er að halda utan um málefni sjóðsins og kynningar- og umsóknarferli í samstarfi við umsjónarmann Styrktarsjóða Háskóla Íslands og kynningarstjóra Hugvísindasviðs. Stjórnin tekur ákvörðun um einstakar styrkveitingar, auglýsir eftir umsóknum um styrki og/eða tilnefnir styrkþega. Stjórnin hefur eftirlit með ráðstöfun og meðferð fjármuna. Stjórnin kemur saman að minnsta kosti árlega. Stjórnin fer yfir ársreikning sjóðsins og setur sér nánari starfsreglur um úthlutanir, svo sem einstakar styrkfjárhæðir, umsóknarfresti og ferli umsókna, innan ákvæða skipulagsskrár. Starfsreglur sjóðsins skulu endurskoðaðar reglulega. Sjóðsstjórn heldur fundargerðarbók og skilar fundargerðum til umsjónarmanns Styrktarsjóða Háskóla Íslands til varðveislu. 8. gr. Umsýsla og endurskoðun sjóðsins Reikningsár sjóðsins er almanaksárið. Endurskoðendur sjóðsins eru endurskoðendur Styrktarsjóða Háskóla Íslands. Reikningar sjóðsins skulu birtir með sama hætti og annarra sjóða í vörslu Háskóla Íslands. 9. gr. Um breytingar á skipulagsskránni Ekki er hægt að leggja sjóðinn niður eða gera breytingar á hlutverki hans og tilgangi, af öðrum ástæðum en kveðið er á um í lögum og ekki án þess að sjóðsstjórn og rektor Háskóla Íslands séu einhuga um þá ákvörðun. Verði sjóðurinn lagður niður, skulu fjármunir hans renna til málefna sem tengjast markmiði og tilgangi sjóðsins. 10. gr. Sjóðir sem eru lagðir niður og voru með staðfesta skipulagsskrá Við staðfestingu skipulagsskrár þessarar eru lagðir niður eftirtaldir sjóðir: Det Danske Selskabs Studenterlegat (1943). Stjórnartíðindi númer 190/1943. Minningarsjóður dr. Rögnvalds Péturssonar (1960). Stjórnartíðindi númer 79/1964. Minningarsjóður norskra stúdenta (1948). Stjórnartíðindi númer 149/1948. Norðmannsgjöf (1961). Stjórnartíðindi númer 141/1961. Reykjavík, 3. júní 2019 Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands Guðmundur Hálfdánarson forseti Hugvísindasviðs Háskóla Íslands Gylfi Magnússon formaður stjórnar Styrktarsjóða Háskóla Íslands Um starfsemi sjóðsins fer eftir því sem segir í lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá. Staðfestingar sýslumannsins á Norðurlandi vestra skal leitað á skipulagsskrá þessari og breytingum sem kunna að vera gerðar á henni. Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988. facebooklinkedintwitter