Markmið sjóðsins er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga. Bent Scheving Thorsteinsson stofnaði Verðlaunasjóð Óskars Þórðarsonar 25. september 2000 með veglegri peningagjöf til minningar um fóstra sinn, Óskar Þórðarson barnalækni, f. 14. júní 1897, d. 25. september 1958. Sjóðurinn er einn þriggja sjóða sem Bent hefur stofnað við Háskóla Íslands. Hinir eru Verðlaunasjóður Bergþóru og Þorsteins Scheving Thorsteinssonar, föður Bents, til styrktar rannsóknum á sviði lyfjafræði, og Styrktarsjóður Margaret og Bent Scheving Thorsteinssonar, sem ætlað er að styðja við rannsóknir á sviði eineltis. Það er ósk gefanda að verðlaunum sé úthlutað við hátíðlega opinbera athöfn og þess þá getið í hverra minningu þau eru veitt, og fram tekið hverjum veitt, upphæð verðlauna og framlag verðlaunahafa. Um Óskar Þórðarson Óskar Þórðarson barnalæknir fæddist 1897, brautskráðist frá Læknadeild Háskóla Íslands 1927, lærði fæðingahjálp í Danmörku 1927 og stundaði sérnám í barnalækningum í Austurríki og Þýskalandi á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar. Hann stofnaði læknastofu í Reykjavík árið 1930 og rak hana til dauðadags árið 1958. Samhliða var Óskar skólalæknir Austurbæjarskólans og Laugarnesskólans, læknir barnaheimilis Sumargjafar og eftirlitslæknir við barnaheimili Reykjavíkur. Óskar kvæntist Guðrúnu Sveinsdóttur frá Hrauni á Skaga, móður Bents, stofnanda verðlaunasjóðsins, árið 1928. Stjórn sjóðsins Ekki er starfandi stjórn í sjóðnum. Rektor ákveður úthlutun úr sjóðnum hverju sinni samkvæmt skipulagsskrá og hefur um það frjálsar hendur. Skal hann leita samráðs við forseta Læknadeildar. Staðfest skipulagsskrá Skipulagsskrá fyrir Verðlaunasjóð Óskars Þórðarsonar læknis. 1. gr. Sjóðurinn heitir Verðlaunasjóður Óskars Þórðarsonar barnalæknis, f. 14. júní 1897 d. 25. september 1958. Hann er stofnaður af Bent Scheving Thorsteinsson 25. september 2000 með framlagi hlutafjár að nafnvirði kr. 200.122, er hann gefur til minningar um fóstra sinn. 2. gr. Sjóðurinn skal vera í vörslu Háskóla Íslands og ávaxtaður á hagkvæmasta hátt á hverjum tíma og reikningar sjóðsins endurskoðaðir með reikningum Háskólasjóða. 3. gr. Tekjur sjóðsins eru vextir af stofnfé, svo og gjafir er sjóðnum kunna að berast og leggjast við stofnfé. Stofnfé skal ekki skerða. 4. gr. Markmið sjóðsins er að veita verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir, ritgerðir og skylda starfsemi á sviði barnalækninga. 5. gr. Rektor ákveður úthlutun úr sjóðnum hverju sinni og hefur um það frjálsar hendur. Þó skal hann leita samráðs við forseta læknadeildar. 6. gr. Úthluta má úr sjóðnum árlega eða sjaldnar eftir því sem rektor finnst tilefni til, en ekki má úthluta meira en 3/4 af vaxtatekjum hans hverju sinni. Óúthlutaðir vextir leggjast við stofnfé. 7. gr. Það er ósk gefanda að verðlaunum sé úthlutað við hátíðlega opinbera athöfn og þess þá getið í hvers minningu þau eru veitt, og fram tekið hverjum veitt, upphæð verðlauna og framlag verðlaunahafa. Jafnframt væri æskilegt að greint væri frá verðlaunaveitingunni í fjölmiðlum og Árbók Háskóla Íslands. 8. gr. Heimilt er að breyta skipulagsskrá þessari ef rektor telur það nauðsynlegt. 9. gr. Verði sjóðurinn lagður niður skulu eignir hans renna til málefna tengdra markmiðum sjóðsins. 10. gr. Skipulagsskrá Verðlaunasjóðs Óskars Þórðarsonar læknis skal staðfest af dómsmálaráðuneyti samkvæmt lögum nr. 19/1988. Reykjavík, 25. september 2000. Bent Scheving Thorsteinsson. Skipulagsskrá þessi staðfestist hér með samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá, nr. 19/1988. Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, 7. desember 2000. F. h. r. Jón Thors. Fanney Óskarsdóttir. facebooklinkedintwitter