Áslaug Geirsdóttir
Jarðvísindadeild
Rannsóknir mínar eru innan jöklajarðfræði, jöklunarsögu og fornloftslags. Ég hef unnið að rannsóknum á ástæðum loftslagsbreytinga, sérstaklega breytingum á jöklum á Íslandi allt frá upphafi jökulskeiða fyrir um 3 ma. Nýleg rannsóknaáhersla mín er á þróun loftslags á Holocene (síðustu ca 11.7 ka) þar sem ég beiti rannsóknum á jarðefnafræði og lífmerkjum í jarðvegi, stöðuvatnaseti og sjávarseti. Ég er aðili að INSTAAR (Institute of Arctic and Alpine Research) og hef stöðu við Miðstöð framhaldsnáms við háskólann í Colorado Boulder. Ég hef verið í samstarfi við vísindamenn frá Evrópu, Kanada og Bandaríkjunum í stórum alþjóðlegum verkefnum sem fjalla um loftslagsbreytingar á Norðurhveli á ýmsum tímakvörðum. Undanfarið hefur áhugi minn beinst að spurningunni um uppruna jarðvegsrofs og óstöðugleika í landslagi á Íslandi, í þeim tilgangi að einangra hugsanleg áhrif loftslags, eldgosa og landnáms manna á landslag með notkun lífmerkja og sedaDNA.
- 1988 Ph.D. University of Colorado Boulder jarðfræði
- 1982 MS Christian Albrechts-Universität, Kiel, Germany jarðfræði
- 1979 BS Háskóli Íslands jarðfræði