Tilgangur sjóðsins er að styrkja samning og útgáfu íslenskrar samheitaorðabókar, rímorðabókar og íslenskrar stílfræði, svo og að styrkja endursamningu og endurútgáfu nefndra bóka meðan sjóðurinn endist. Við úthlutun úr sjóðnum skal samheitorðabók sitja í fyrirrúmi. Styrk úr sjóðnum skal aðeins veita manni eða mönnum, sem hafa kynnt sér rækilega samningu bóka ofangreindra tegunda erlendis og eru óumdeildanlega verkinu vaxnir að því er snertir þekkingu, verkhæfni og innræti. Sjóðurinn er stofnaður árið 1970 af Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi og Margréti Jónsdóttur, konu hans. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn. Um Þórberg Þórðarson Þórbergur Þórðarson fæddist á Hala í Suðursveit 12. mars árið 1888. Átján ára hélt hann til Reykjavíkur, var kokkur á skútu í þrjú ár en tók svo til við nám í Kennaraskólanum, Menntaskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands, reyndi næsta áratug að sjá sér farborða með íhlaupavinnu – en gekk misvel. Hann gerði sér vonir um að fá að ljúka háskólaprófi í íslenskum fræðum árið 1919 en fékk ekki leyfi til þess þar eð hann hafði ekki lokið stúdentsprófi. Árið 1917 fékk Þórbergur styrk til orðasöfnunar frá Alþingi en var 1919 ráðinn kennari við Iðnskólann og þar með urðu umskipti á lífi hans. Þórbergur eignaðist árið 1924 dótturina Guðbjörgu með Sólrúnu Jónsdóttur en giftist Margréti Jónsdóttur 1932 og bjó með henni til dauðadags, 12. nóvember 1974. Enda þótt Þórbergur gæfi út tvær ljóðabækur á námsárum sínum undir nafninu Styr stofuglam vakti hann ekki umtalsverða athygli sem rithöfundur fyrr en með Bréfi til Láru árið 1924. Af fræðiverkum hans má nefna bókina Um alþjóðamál og málleysur (1933) og ritgerðina „Einum kennt, öðrum bent“ (1944) . Stjórn sjóðsins Stjórn sjóðsins ákveður úthlutun úr honum. Stjórnina skulu skipa þrír menn: Forstöðumaður Orðabókar Háskólans, og er hann formaður stjórnar, prófessor í bókmenntum eða íslenzkri málfræði, tilnefndur af heimspekideild til þriggja ára í senn, og rektor eða fulltrúi hans. Í stjórn sjóðsins sitja: Guðrún Kvaran, prófessor, gkvaran@hi.is Bergljót Kristjánsdóttir, bergljot@hi.is Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, gnordal@hi.is Staðfest skipulagsskrá Staðfesting forsetans á skipulagsskrá Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur, útgefin á venjulegan hátt ad mandatum af dómsmálaráðherra 6. nóvember 1970. Skipulagsskráin er þannig:Skipulagsskrá Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur. 1. gr. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Þórbergs Þórðarsonar og Margrétar Jónsdóttur. Sjóðurinn er eign Háskóla Íslands og er ávöxtun hans í höndum rektors og háskólaráðs. 2. gr. Sjóðurinn er stofnaður af Þórbergi Þórðarsyni rithöfundi og Margréti Jónsdóttur konu hans. 3. gr. Tilgangur sjóðsins er að styrkja samningu og útgáfu íslenzkrar samheitaorðabókar, rímorðabókar og íslenzkrar stílfræði, svo og að styrkja endursamningu og endurútgáfu nefndra bóka meðan sjóðurinn endist. Við úthlutun úr sjóðnum skal samheitorðabók sitja í fyrirrúmi. 4. gr. Stjórn sjóðsins ákveður úthlutun úr honum. Stjórnina skulu skipa 3 menn: Forstöðumaður Orðabókar Háskólans, og er hann formaður stjórnar Prófessor í bókmenntum eða íslenzkri málfræði, tilnefndur af heimspekideild til þriggja ára í senn Rektor eða fulltrúi hans 5. gr. Styrk úr sjóðnum skal aðeins veita manni eða mönnum, sem hafa kynnt sér rækilega samningu bóka ofangreindra tegunda erlendis og eru óumdeildanlega verkinu vaxnir að því er snertir þekkingu, verkhæfni og innræti. Heimilt er að skerða höfuðstól sjóðsins eftir því sem þurfa þykir til að tilgangi hans verði náð sbr. 3. gr. 6. gr. Gera skal reikninga sjóðsins ár hvert og skulu niðurstöður þeirra birtast í árbók Háskólans. Reikningar skulu endurskoðaðir með sama hætti og reikningar annarra háskólasjóða. 7. gr. Sjóðinn skal svo sem unnt er varðveita í fasteignum eða öðrum verðmætum, sem halda gildi sínu á svipaðan hátt. 8. gr. Leita skal staðfestingar forseta Íslands á skipulagsskrá þessari og skal hún síðar prentuð í B-deild Stjórnartíðinda og Árbók Háskólans. facebooklinkedintwitter