Tilgangur sjóðsins er að bjóða til fyrirlestrahalds við Háskóla Íslands íslenskum eða erlendum fræðimönnum, og skulu fyrirlestrarnir tengdir nafni prófessors Níelsar Dungals. Sjóður Níelsar Dungals prófessors var stofnaður við Háskóla Íslands árið 1971. Sjóðurinn er stofnaður með framlagi frá Rannsóknarstofu Háskólans í meina- og sýklafræði, og fær árlegar tekjur frá þeirri stofnun samkvæmt ákvörðun hlutaðeigandi stjórnvalda hverju sinni. Sjóðurinn starfar samkvæmt staðfestri skipulagsskrá og hefur sjálfstæða stjórn. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönnum skv. skipulagsskrá, þ.e. prófessornum í meinafræði við Háskóla Íslands, sem er formaður stjórnarinnar, einum manni, er Læknadeild tilnefnir og öðrum er háskólaráð nefnir til. Stjórn sjóðsins Stjórn sjóðsins skipa: Bjarni A. Agnarsson, prófessor og formaður stjórnar, bjarniaa@landspitali.is Karl G. Kristinsson, prófessor, karl@landspitali.is Ingileif Jónsdóttir, prófessor, ingileif@landspitali.is Staðfest skipulagsskrá Staðfesting forsetans á skipulagsskrá fyrir Sjóð Níelsar Dungals prófessors, útgefin á venjulegan hátt ad mandatum af dómsmálaráðherra 1. nóvember 1971. Skipulagsskráin er þannig: Skipulagsskrá fyrir Sjóð Níelsar Dungals prófessors. 1. gr. Sjóðurinn heitir Sjóður Níelsar Dungals prófessors. Sjóðurinn er stofnaður með framlagi frá Rannsóknarstofu Háskólans í meina- og sýklafræði, og fær árlegar tekjur frá þeirri stofnun samkvæmt ákvörðun hlutaðeigandi stjórnvalda hverju sinni. 2. gr. Sjóðurinn er eign Háskóla Íslands, og er varzla hans og ávöxtun í höndum rektors og háskólaráðs samkvæmt þeim almennu reglum, er gilda um sjóði Háskólans. 3. gr. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur mönnum, prófessornum í meinafræði við Háskóla Íslands, sem er formaður stjórnarinnar, einum manni er læknadeild tilnefnir og öðrum er háskólaráð nefnir til. 4. gr. Tilgangur sjóðsins er að bjóða til fyrirlestrahalds við Háskóla Íslands íslenzkum eða erlendum fræðimönnum, og skulu fyrirlestrarnir tengdir nafni prófessors Níelsar Dungals. 5. gr. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir og birtir með sama hætti og reikningar annarra háskólasjóða. 6. gr. Leita skal staðfestingar forseta Íslands á skipulagskrá þessari. facebooklinkedintwitter