Markmið sjóðsins er að styrkja efnilega kandídata í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis. Stofnfé sjóðsins er gefið árið 1961 af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Sambandi smásöluverzlana og Verzlunarráði Íslands og afhent Háskóla Íslands til minningar um aldarafmæli frjálsrar verslunar hér á landi, en verslun var eigi frjáls hér fyrr en lög 15. apríl 1854 um siglingar og verslun á Íslandi tóku gildi hinn 1. apríl 1855. Engin stjórn er starfandi fyrir sjóðinn. Sjá nánar um styrktarsjóði Háskóla Íslands Stofnskrá Staðfesting forsetans á skipulagsskrá fyrir Minningarsjóð um aldarafmæli frjálsrar verzlunar á Íslandi, útgefin á venjulegan hátt ad mandatum af dómsmálaráðherra 22. marz 1961. Skipulagsskráin er þannig: Skipulagsskrá fyrir Minningarsjóð um aldarafmæli frjálsrar verzlunar á Íslandi. 1. gr. Sjóðurinn heitir Minningarsjóður um aldarafmæli frjálsrar verzlunar á Íslandi. Sjóðurinn er gefinn af Sambandi íslenzkra samvinnufélaga, Sambandi smásöluverzlana og Verzlunarráði Íslands og afhentur Háskóla Íslands til minningar um aldarafmæli frjálsrar verzlunar hér á landi, en verzlun var eigi frjáls hér, fyrr en lög 15. apríl 1854 um siglingar og verzlun á Íslandi, tóku gildi hinn 1. apríl 1855. 2. gr. Stofnfé sjóðsins er kr. 100.000,00 – eitt hundrað þúsund krónur –. Sjóðurinn er eign Háskóla Íslands, og skal háskólaráð sjá um geymslu sjóðsins og ávöxtun. 3. gr. Höfuðstól sjóðsins má aldrei skerða. Vöxtum sjóðsins skal varið til að styrkja efnilega kandídata í viðskiptafræðum frá Háskóla Íslands til framhaldsnáms erlendis. Leggja má saman vaxtatekjur nokkurra ára og veita í einu lagi. Sjóðnum skal fylgja bók, þar sem skráð séu nöfn styrkþega og helztu æviatriði, ásamt greinargerð um það, hvernig styrkurinn hafi verið notaður. 4. gr. Stjórn sjóðsins er skipuð fimm mönnum, þremur tilnefndum af gefendum, en tveimur tilnefndum af laga- og viðskiptadeild Háskóla Íslands. Stjórnin skiptir með sér störfum. Hún ákveður, hvenær auglýsa skuli styrk til umsóknar og ræður því, hver hreppa skuli styrkinn. 5. gr. Reikningar sjóðsins skulu birtir í árbók háskólans. Skulu þeir endurskoðaðir með sama hætti og aðrir reikningar háskólans. 6. gr. Leita skal staðfestingar forseta Íslands á skipulagsskrá þessari. facebooklinkedintwitter