Hlutu hvatningarviðurkenningar á Nýsköpunarmóti Álklasans
Fjórir háskólanemar fengu hvatningarviðurkenningar á vel sóttu Nýsköpunarmóti Álklasans í Hátíðasal Háskóla Íslands í gær. Snjallvæðing, loftslagsmál og hringrásarhagkerfið voru ofarlega á baugi í þeim erindum sem flutt voru á mótinu og endurspegluðust þær áherslur í þeim nemendaverkefnum sem fengu viðurkenningu. Í tengslum við mótið var fyrsti álbíllinn sem smíðaður var frá grunni hér á landi til sýnis við Aðalbyggingu Háskólans.
Það var Guðbjörg Óskarsdóttir, framkvæmdarstjóri Álklasans, sem afhenti verðlaunin og vakti af því tilefni máls á hugmyndagátt á heimasíðu Álklasans, þar sem háskólanemar geta sótt hugmyndir að verkefnum.
Nemendurnir sem fengu hvatningarviðurkenningar í ár eru:
- Caroline Mary Medion, nemi við Háskólann í Reykjavík: Improving Current Efficiency in L-T Aluminum Electrolysis with Vertical Inert Electrodes.
- Diljá Heba Petersen, nemi við Háskóla Íslands: Endurnýtingarmöguleikar slaggs frá kísiljárnframleiðslu.
- Eymar Andri Birgisson, nemi við Háskólann í Reykjavík: Sjálfvirknivæðing á kerviðgerðum með tölvusjón.
- Hinrik Már Rögnvaldsson, nemi við Háskóla Íslands: Flokkunarmódel planaðrar áltöku.
Að hvatningarviðurkenningunni standa fyrirtækin, Mannvit, Efla, Hamar, Snókur, Rio Tinto, Alcoa Fjarðaál, Norðurál og Landsbankinn en auk þess bjó Álverið í Garðabæ, sem sérhæfir sig í yfirborðsmeðhöndlun á áli, til álviðurkenningarskildi handa viðurkenningarhöfum.
Í kaffihléi á gafst gestum færi á því að bera íslenska álbílinn Ísar augum en hann var frumsýndur á Nýsköpunarmóti Álklasans fyrir tveimur árum síðan og hefur nú tekið miklum breytingum.
Álklasinn var stofnaður árið 2015 en að honum standa 40 fyrirtæki og stofnanir sem tengjast ál- og kísiliðnaði. Þetta er í þriðja sinn sem Nýsköpunarmót Álklasans er haldið en að því standa Álklasinn, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök iðnaðarins og Samál.