Fyrsti fundur háskólaráðs með nýjum rektor

Jón Atli Benediktsson, nýr rektor Háskóla Íslands, stýrði sínum fyrsta fundi sem forseti háskólaráðs fimmtudaginn 4. september.
Ráðið starfar samkvæmt lögum um opinbera háskóla og hefur það hlutverk að marka heildarstefnu í kennslu og rannsóknum og móta skipulag háskólans. Þá fer ráðið einnig með eftirlitshlutverk með starfsemi háskólans í heild og ber ábyrgð á því að háskólinn starfi í samræmi við lög og stjórnvaldsfyrirmæli.
Tímabilið 2014-2016 sitja eftirtaldir fulltrúar í háskólaráði:
- Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og rektor Háskóla Íslands, forseti ráðsins
- Áslaug María Friðriksdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og framkvæmdastjóri Sjá ehf., fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra
- Ebba Þóra Hvannberg, prófessor í tölvunarfræði við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins
- Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins
- Iðunn Garðarsdóttir, laganemi, fulltrúi stúdenta
- Jakob Ó. Sigurðsson, efnafræðingur og MBA, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði
- Margrét Hallgrímsdóttir, fornleifafræðingur og þjóðminjavörður, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði
- Nanna Elísa Snædal Jakobsdóttir, nemi í alþjóðasamskiptum, fulltrúi stúdenta
- Orri Hauksson, forstjóri Símans, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra
- Stefán Hrafn Jónsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild Félagsvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins
- Tómas Þorvaldsson, sérfræðingur í hugverkarétti og lögmaður hjá Vík Lögmannsstofu, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði.
Varamenn eru:
- Björn Már Ólafsson, meistaranemi í lögfræði (fyrir Nönnu Elísu Snædal Jakobsdóttur)
- Borgar Þór Einarsson, lögmaður (fyrir Orra Hauksson)
- Davíð Þorláksson, héraðsdómslögmaður (fyrir Áslaugu Maríu Friðriksdóttur)
- Hákon Hrafn Sigurðsson, prófessor við Lyfjafræðideild Heilbrigðisvísindasviðs (fyrir Ebbu Þóru Hvannberg)
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Kennaradeild Menntavísindasviðs (fyrir Eirík Rögnvaldsson)
- Kjartan Þór Eiríksson, viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri KADECO (fyrir Jakob Ó. Sigurðsson, Margréti Hallgrímsdóttur og Tómas Þorvaldsson)
- Sigþór Jens Jónsson, hjúkrunarfræðinemi (fyrir Iðunni Garðarsdóttur);
- Soffía Auður Birgisdóttir, sérfræðingur við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði (fyrir Stefán Hrafn Jónsson).
Háskólaráð fundaði í gær í fyrsta sinn undir stjórn nýs rektors. Í efstu röð frá vinstri má sjá Orra Hauksson, Tómas Þorvaldsson, Davíð Þorláksson og Magnús Diðrik Baldursson, ritara háskólaráðs. Í miðröð frá vinstri eru þau Edda Þóra Hvannberg, Kjartan Þór Eiríksson og Iðunn Garðarsdóttir. Fremst frá vinstri standa þau Stefán Hrafn Jónsson, Eiríkur Rögnvaldsson, Jón Atli Benediktsson og Nanna Elísa Jakobsdóttir.