Helga Rut Guðmundsdóttir
Deild faggreinakennslu
Ég er prófessor í tónlistarfræðum á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Sérsvið mitt er tónlistarmenntun á öllum skólastigum og kennir ég margvísleg námskeið því tengd. Rannsóknir mínar eru á sviði náms, skynjunar og þroska tengdum tónlist, allt frá nótnalestri til söngþroskafræða. Ég var gistiprófessor við McGill University og University of Montreal og starfaði við fræðistörf á BRAMS (Brain Music and Sound Research) rannsóknastofunum í Montreal 2012-2013. Einnig starfaði ég tímabundið á Fulbright styrk við tvo bandaríska háskóla: Columbia University, Teachers College í New York og University of Southern California, Thornton School of Music. Ég hef ritað fjölda ritrýndra fræðigreina m.a. á sviði nótnalesturs og tónlistarþroska barna á íslensku, ensku og sænsku.
- 2003 Ph.D. McGill University Music Education
- 1997 M.A. McGill University M.A.
- 1992 B.Ed. Kennaraháskóli Íslands B.Ed.
- LVG016G - Söngur og kórstjórn
- LSS210G - Tónlist í lífi ungra barna
- LVG024G - Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á mið- og unglingastig
- KME205G - Að leika og skapa: leiklist, myndlist og tónlist
- LVG109M - Hagnýtur undirleikur í tónmenntakennslu II
- LVG215F - Tónmenntakennsla á vettvangi -Áhersla á mið- og unglingastig
- LVG223F - Söngur og kórstjórn
- LVG102M - Tónlistin og heilinn