Opið hús í Eddu á sumardaginn fyrsta
Nýtt hús Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Háskóla Íslands, sem hefur gengið undir nafninu „Hús íslenskunnar“, verður vígt 19. apríl. Af því tilefni verður húsið opnað almenningi sumardaginn fyrsta, 20. apríl, milli kl. 10 og 16. Þá geta gestir skoðað húsið áður en flutt er inn í það og starfsemi hefst. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íslensk tunga verður í aðalhlutverki. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Húsnæðið mun hýsa starfsemi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands og verður miðstöð rannsókna og kennslu í íslenskum fræðum: tungu, bókmenntum og sögu. Þar verða jafnframt varðveitt frumgögn um íslenska menningu, þ.e. handrit, skjöl, orða- og nafnfræðisöfn og þjóðfræðasöfn.
Í byggingunni eru ýmis sérhönnuð rými, svo sem fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á fornum íslenskum skinnhandritum, vinnustofur kennara og fræðimanna, lesaðstaða fyrir nemendur, fyrirlestra- og kennslusalir og bókasafn með lesaðstöðu.
Í boði allan daginn
- Kvæðamaður skýtur upp kollinum víða um húsið.
- Leiðsögn um aðra hæð hússins.
- Myndlistarsýning: Hvernig blasa íslensku þjóðsögurnar við nemendum í íslensku sem öðru máli?
- [ˈl̥jouðrɪtʏnar̥stɔːva]: Íslenskunemar hljóðrita nafnið þitt.
- Klikk-klikk-klikk-klikk-ding! Pantaðu ljóð hjá ritlistarnemum.
- Kjóstu mesta skúrkinn í íslenskum bókmenntum.
- Veldu skrýtnasta íslenska orðið.
- Hýryrði 2023.
- Talaðu við tækið: Miðeind kynnir nýja gervigreindarlausn á íslensku.
Í bókasafni
- 10.15 Kvæðabarnafjelag Laufásborgar kveður rímur.
- 14.00 Jakob Birgisson uppistandari tekur tunguna í gegn.
- 15.00 Una Torfadóttir tónlistarkona treður upp.
Í fyrirlestrasal
10.00 Upp úr holu íslenskra fræða: Stutt myndbönd um byggingu hússins.
11.00 Arndís Þórarinsdóttir les fyrir börn og fullorðna úr bók sinni Bál tímans: Örlagasaga Möðruvallabókar í sjö hundruð ár.
12.00 Málstofa: Rithöfundarnir Bergsveinn Birgisson og Arndís Þórarinsdóttir
- Ég, Gaius og Gunnlaugur
Arndís Þórarinsdóttir, rithöfundur -
Þormóður Torfason - Velgjörðarmaður íslenskra fræða
Bergsveinn Birgisson, rithöfundurMálstofustjórn: Margrét Eggertsdóttir
13.00 Hvað er á seyði í Árnastofnun? Fræðimenn segja frá rannsóknum sínum.
- Himinninn yfir Snorralaug: Með orðum goðafræðinnar
Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor - Fornrit, örnefni og umhverfisminni
Emily Lethbridge, rannsóknardósent - Jólasveinar, Grýlubörn og hin fornu tröll
Yelena Sesselja Helgadóttir, nýdoktor - Skiptir máli hvernig bókin var gerð?
Beeke Stegmann, rannsóknarlektor - Handrit á faraldsfæti
Katelin Marit Parsons, nýdoktor - Getta sko! Talmálsrannsóknir fyrr og nú
Helga Hilmisdóttir, rannsóknardósent - Hvað eru íslensk orð gömul?
Ellert Þór Jóhannsson, rannsóknarlektor - Málið.is, vefur um íslensku
Halldóra Jónsdóttir, orðabókarritstjóri
Málstofustjórn: Guðvarður Már Gunnlaugsson
14.00 Hvað er á seyði í íslenskunni? Fræðimenn við Háskóla Íslands segja frá rannsóknum sínum.
- Nokkur orð um norðurljós
Aðalheiður Guðmundsdóttir, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda - Er hægt að segja bókmenntasögu með línuritum og súluritum?
Jón Karl Helgason, prófessor í íslensku sem öðru máli - Helvítið þitt og helvítið á honum
Katrín Axelsdóttir, dósent í íslensku sem öðru máli - Viltu tala íslensku við mig? Íslenskunám utan kennslustofunnar
Guðrún Theodórsdóttir, dósent í íslensku sem öðru máli - Máltaka íslenskra barna í breyttu málumhverfi samtímans
Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor í íslenskri málfræði, og Iris Edda Nowenstein, doktorsnemi í íslenskri málfræði - Hinsegin Laxness: Höfundarverk lesið með nýjum gleraugum
Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor í íslenskum samtímabókmenntum
Málstofustjórn: Brynja Þorgeirsdóttir
15.00 Sumarsögur og fjögur skáld. Fjórir rithöfundar lesa úr verkum sínum og fagna sumri.
- Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Brynja Hjálmsdóttir
- Brynjólfur Þorsteinsson
- Dagur Hjartarson
Kynnir: Huldar Breiðfjörð