Saga af svartri geit - bókakvöld í Loftskeytastöðinni

Loftskeytastöðin við Suðurgötu
Samstarf Loftskeytastöðvarinnar, menningarhúss Háskóla Íslands, og bókaútgáfunnar Angústúru heldur áfram og á viðburði þriðjudaginn 29. apríl kl. 20 verður skáldsagan Saga af svartri geit eftir Perumal Murugan tekin til umfjöllunar, en Murugan er fyrsti tamílski rithöfundurinn sem gefinn er út á íslensku. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýðir en hún hlaut á dögunum Íslensku þýðingaverðlaunin fyrir verkið.
Saga af svartri geit er saga af geit, samfélagi, stétt og kærleika en einnig saga af því hvernig lítið kraftaverk getur steypt venjulegum manneskjum í glötun.
Í sófanum í Loftskeytastöðinni verða Shilpa Khatri Babbar, prófessor og forstöðumaður náms í indverskum fræðum við HÍ, ásamt Sólveigu Ástu Sigurðardóttur bókmenntafræðingi.
Kaffisopi/te verður í boði hússins.
Samstarf Loftskeytastöðvarinnar, menningarhúss Háskóla Íslands, og bókaútgáfunnar Angústúru heldur áfram og á viðburði þriðjudaginn 29. apríl kl. 20 verður skáldsagan Saga af svartri geit eftir Perumal Murugan tekin til umfjöllunar, en Murugan er fyrsti tamílski rithöfundurinn sem gefinn er út á íslensku.
