Opið hús í Veröld - húsi Vigdísar

Hvenær
2. mars 2019 13:00 til 15:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Nánar
Aðgangur ókeypis
Opið hús verður í Veröld – húsi Vigdísar 2. mars kl. 13:00-15:00.
Áhugasömum gefst þar tækifæri til að skoða húsið og þá aðstöðu sem er til náms fyrir nemendur í erlendum tungumálum í Mála- og menningardeild Háskóla Íslands.
Skemmtilegar uppákomur verða í gangi í Veröld: tónlist frá ýmsum löndum, ljóðaupplestur á þýsku, ensku og spænsku, japanskir búningar, kínverskur dreki o.fl.
Nemendur Mála- og menningardeildar bjóða upp á leiðsögn um húsið kl. 13:30 og 14:30 og segja frá náminu í deildinni.
Heitt á könnunni og allir velkomnir í Veröld -hús Vigdísar!
Opið hús í Veröld - húsi Vigdísar
