Meistarafyrirlestur í hagnýtri tölfræði - Þórey Heiðarsdóttir
Fyrirlestrinum verður streymt: https://us04web.zoom.us/j/78751676367?pwd=YmIycVFyNXY2bHljbUZNTWRuZXZUZz09
Meistaranemi: Þórey Heiðarsdóttir
Heiti verkefnis: Greining með slembiþáttalíkani á þróun blóðþrýstings og gönguvegalengdar í tveggja ára langtímarannsókn
___________________________________________
Deild: Raunvísindadeild
Leiðbeinandi: Thor Aspelund, prófessor við Miðstöð í lýðheilsuvísindum
Einnig í meistaranefnd: Janus Guðlaugsson
Prófdómari: Jóhanna Jakobsdóttir, rannsóknasérfræðingur við Miðstöð í lýðheisluvísindum
Ágrip
Helsta markmið þessa verkefnis var að nota slembiþáttalíkön til að greina þróun í endurteknum mælingum á blóðþrýstingi og gönguvegalend eldri borgara, 65-94 ára, í tveggja ára fjölþættri heilsueflingu. Línuleg og slembiþáttalíkön með þriðja stigs splæsiföllum voru borin saman. Líkan með splæsiföllum gaf betra mat á bæði þróun blóðþrýstings og gönguvegalend. Árangur heilsueflingarinnar á blóðþrýstingi og gönguvegalengd var mestur að lokinni fyrstu 6 mánuða íhlutun, stóð síðan í stað næstu 12 mánuði en síðan dró aðeins úr árangrinum á síðasta 6 mánaða þjálfunartímabili. Til þess að öðlast rétta mynd af þróun sambanda sem eru ólínuleg er æskilegt að nota splæsiföll. Annað markmið verkefnisins var að skoða hvort hægt væri að spá fyrir um brottfall þátttakenda út frá þeirra grunnmælingum. Niðurstöður benda til þess að ýmis líkamleg geta þátttakenda í upphafi eins og lipurð og snerpa (átta feta hreyfijafnvægi), styrkur (gripstyrkur) og þol eða afkastageta (gönguvegalengd á sex mínútna gönguprófi) einstaklinga geti sagt til um hvort þeir endist í íhlutunarverkefni sem þessu. Tengslin voru hins vegar ekki sterk og mögulega eru aðrir þættir í fari þátttakenda sem skýra brottfallið sem mælinga rannsóknarinnar náðu ekki yfir. Fara þarf varlega þegar sameina á til greiningar hópa þeirra sem ná langt í rannsókn og þeirra sem detta snemma út.