
-English below-
Nemendum Háskóla Íslands býðst að sækja um átta vikna sumarnám International Honors Program (IHP) við Stanford háskóla í Kaliforníu sem haldið er ár hvert. Sumarnámið 2026 stendur yfir frá 20. júní til 16. ágúst.
Í boði er fjölbreytt úrval námskeiða. Nemendur þurfa að skrá sig í fullt nám (8 Stanford einingar sem jafngilda 12 ECTS einingum) og geta sótt um að fá námskeið metin inn í námsferil sinn í HÍ. Nemendur HÍ fá 20% afslátt af skólagjöldum, sem nema þá 9.632 USD fyrir nemendur í grunnnámi en 11.016 USD fyrir framhaldsnema. Auk þess greiða nemendur fyrir húsnæði á stúdentagörðum, fæði og ýmsan annan kostnað, sem nemur 8.342 USD fyrir grunnnema og 9.849 USD fyrir framhaldsnema.
Allir nemendur HÍ í grunn- og meistaranámi sem hafa lokið a.m.k. einu námsári (60 ECTS) áður en sumarnámið hefst með meðaleinkunn að lágmarki 7,5 geta sótt um. Nemendur HÍ eru undanþegnir kröfum um TOEFL próf, en verða að hafa mjög góða enskukunnáttu.
Umsóknarferlið er tvíþætt. Nemendur senda fyrst umsókn til Háskóla Íslands. Sérstök valnefnd metur umsækjendur á grundvelli námsárangurs, meðmæla, framtíðaráforma og viðtals og velur hóp nemenda sem tilnefndir eru til Stanford. Tilnefndir nemendur senda síðan inn umsókn með námskeiðsvali til Stanford.
Sótt er um rafrænt og fylgigögn (á ensku) hengd við umsóknina.
Opnað verður fyrir umsóknir um miðjan desember. Umsóknarfrestur er 2. febrúar 2026.
Fylgigögn (á ensku):
1. Kynningarbréf (e. personal statement), hámark 600 orð
2. Staðfest námsferilsyfirlit ásamt árangursröðun (e. ranking) – fæst á Þjónustuborði á Háskólatorgi
Stanford og Háskóli Íslands undirrituðu samning um sumarnám árið 2010 og síðan þá hefur hópur nemenda HÍ farið til Stanford á sumri hverju og kynnst einstöku háskóla- og vísindasamfélagi í einum virtasta háskóla heims. Námsdvöl við Stanford getur nýst þeim vel sem stefna á framhaldsnám í Bandaríkjunum.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Alþjóðasviði á ask@hi.is eða s. 525 4311.
------
Summer at Stanford University
University of Iceland students will have the opportunity to participate in the 8-week International Honors Program (IHP) at Stanford University. The summer programme in 2026 runs from 20 June to 16 August.
Students can select from a variety of courses and must enroll in at least 8 Stanford units (12 ECTS) that can be transferred to UI. All nominated UI students will receive a 20% discount of the tuition fees, bringing the cost to $9,632 for undergraduate students, and $11,016 for graduate students. In addition, students pay for on-campus student housing, meals and other expenses, which amount to $8,342 for undergraduate students and $9,849 for graduate students.
Undergraduate and Master´s students from all disciplines, who have completed at least one academic year (60 ECTS) at UI at the start of the summer program with a minimum GPA of 7.5, are eligible to apply. Students at the University of Iceland are exempt from submitting TOEFL scores but must be completely fluent in English.
Please note that this is a two-step application process. Students first apply to the University of Iceland, where a selection committee evaluates their academic achievements, letters of recommendation, future plans and an interview. Selected students are then nominated to Stanford and proceed with the Stanford application process.
Students fill out an online application, with attached supporting documents (in English).
Applications will open in mid-December. The application deadline is 2 February 2026.
Supporting documents (in English):
1. Personal statement (max 600 words)
2. Official transcript with ranking - available at the Service Desk, University Centre
A group of students from the University of Iceland has participated in the summer program at Stanford since 2010, when an agreement was first established between Stanford University and the University of Iceland. This is a unique opportunity for UI students to study at one of the leading universities in the world. The IHP Program can come in good use when applying for further studies.
For further information, please contact the UI International Division at ask@hi.is or 525 4311