Skip to main content

Leitað að lyfjasprotum í sjávarsvömpum

„Meginmarkmið verkefnisins er að einangra lífvirk efnasambönd úr sjávarsvömpum með það fyrir augum að finna nýja áhugaverða lyfjasprota og þróa leiðir til að framleiða lyf með líftækni,“ segir Margrét Þorsteinsdóttir, dósent í lyfjagreiningu, um evrópska samstarfsverkefnið BluePharmTrain, sem hleypt var af stokkunum í haust fyrir tilstilli Marie Curie mannauðsáætlunar Evrópusambandsins. 

Margrét Þorsteinsdóttir og Sesselja S. Ómarsdóttir

„Meginmarkmið verkefnisins er að einangra lífvirk efnasambönd úr sjávarsvömpum með það fyrir augum að finna nýja áhugaverða lyfjasprota og þróa leiðir til að framleiða lyf með líftækni.“

Margrét Þorsteinsdóttir og Sesselja S. Ómarsdóttir

Margrét og Sesselja S. Ómarsdóttir, dósent í lyfja- og efnafræði náttúruefna, eiga aðild að verkefninu fyrir hönd Háskóla Íslands, auk doktorsnema, en verkefnið er unnið í samvinnu 18 evrópskra háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja og felst það m.a.í þjálfun ungra vísindamanna á sviði sjávarlíftækni. Fyrirtækin Matís ohf. og Actavis og sprotafyrirtækið ArcticMass taka einnig þátt í verkefninu hér á landi. 

„Svampar eru tiltölulega frumstæðar lífverur sem eru mjög áhugaverðir með tilliti til lífvirkra efnasambanda og fjölbreytilegrar örveruflóru sinnar. Nú þegar hafa yfir 7000 lífvirk efnasambönd verið einangruð úr svömpum sem hafa meðal annars reynst virka gegn krabbameinsfrumum, sýklum og veirum,“ útskýrir Sesselja en hún hefur margra ára reynslu í að einangra efnasambönd úr náttúrunni og greina uppbyggingu þeirra. Undanfarin ár hefur hún leitað að ákjósanlegum lífefnum úr mismunandi sjávarlífverum, þ. á m. svömpum, og lærði m.a. köfun til þess að geta sjálf sótt lífverurnar á hafsbotn. 

„Okkar hluti verkefnisins felst í því að einangra og magngreina lyfjavirk efnasambönd úr svömpum af hafsbotni kringum Ísland og greina byggingu þeirra,“ segir Margrét en hún hefur í rannsóknum sínum lagt megináherslu á aðgreiningu og magngreiningu á lyfjaefnum með vökvaskilju, tengdri massagreini, sem er afar sérhæft mælitæki sem nýtist vel til að aðskilja og greina efni. 

Margrét og Sesselja sameina því krafta sína og hyggjast byggja upp þverfaglegt svið innan sjávarlíftækninnar í samvinnu við hina vísindahópana. „Við vonumst til að verkefnið
skili nýjum virkum efnasamböndum og þar með lyfjasprotum framtíðarinnar, auk þess sem við vonumst til að þróaðar verði nýjar leiðir til hagkvæmrar og sjálfbærrar ræktunar á svömpum og samlífsörverum þeirra,“ segir Sesselja að lokum um verkefnið sem stendur til haustsins 2017. 

Tengt efni