Skip to main content

Lyfja leitað á hafsbotni

Sesselja Ómarsdóttir, dósent við Lyfjafræðideild, og Eydís Einarsdóttir, doktorsnemi við Lyfjafræðideild

Athygli hefur vakið í sumar og haust í hvert sinn sem tvær ungar konur hafa komið upp úr hafdjúpunum nærri Dalvík í Eyjafirði með ótrúlega litskrúðugar sjávarlífverur í farteskinu. Vegna jarðhita á sjávarbotni á svæðinu hafa myndast miklar hverastrýtur sem gera allt líf mun fjölskrúðugra á svæðinu en þekkist víðast hvar annars staðar við landið.

„Við erum að leita að lyfjavirkum efnasamböndum úr sjónum og einbeitum okkur að hryggleysingjum,“ segir Sesselja Ómarsdóttir, dósent í lyfjafræði við Háskóla Íslands, sem kann bara vel við sig í blautbúningi innan um möttuldýr, svampa og mosadýr. „Þessi dýr þurfa að verja sig og vegna þess að ytri varnir þeirra eru litlar þá beita þær öðrum aðferðum, eins konar efnahernaði, og þessir eiginleikar lífveranna geta hugsanlega nýst í lyf ef tekst að finna og einangra efnið í lífverunni.“

Sesselja Ómarsdóttir

„Við erum að leita að lyfjavirkum efnasamböndum úr sjónum og einbeitum okkur að hryggleysingjum.“

Sesselja Ómarsdóttir

Sesselja hefur numið köfun með fram starfi sínu sem vísindamaður og kennari við háskólann og það hefur Eydís Einarsdóttir doktorsnemi líka gert en hún vinnur að þessu verkefni með Sesselju. Þetta hafa þær báðar gert til að einfalda sér leitina að lyfjum á hafsbotni.

„Hafið þekur um 70% af flatarmáli jarðar og einkennist af fjölbreyttu dýralífi. Sérstakt umhverfi í hafinu í kringum Ísland eykur líkurnar á því að hér sé að finna áhugaverð efnasambönd, auk þess sem rannsóknir á efnaauðlegð hafsins hafa færst mikið í aukana síðastliðin 20 ár,“ segir Sesselja.

Hún segist hafa mikinn áhuga á náttúruefnafræðiog sjávarhryggleysingjar framleiði afar fjölbreytt lyfjavirk efnasambönd. Eydís Einarsdóttir tekur í svipaðan streng og segir að þær séu með margar áhugaverðar niðurstöður úr þessari rannsókn nú þegar: „Við höfum fundið lífverur sem framleiða efni sem hemja vöxt krabbameinsfruma í rækt og vonandi mun það leiða til þess að við finnum ný efnasambönd sem geta e.t.v. orðið að áhugaverðum lyfjasprotum.“

Þær segja að stöðugar rannsóknir, uppgötvun og þróun nýrra lyfjavirkra efna séu mikilvægur þáttur í baráttu okkar við margvíslega sjúkdóma. „Nú þegar eru þrjú lyf á markaði sem eiga rætur sínar að rekja til sjávarhryggleysingja, tvö krabbameinslyf og eitt verkjastillandi lyf. Framtíðin verður síðan að leiða í ljós hvort nýir lyfjasprotar leynist í fjársjóðskistu okkar Íslendinga á hafsbotni,“ segir Sesselja.

Tengt efni